Prófessor telur kjósendur opnari fyrir nýjungum: Mikið rót komið á hollustu við flokka Freyr Bjarnason skrifar 23. maí 2014 08:00 Hið góða gengi endurspeglar óánægju kjósenda með það sem fyrir var. Fréttablaðið/GVA
Gengi nýrra flokka í skoðanakönnunum vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hefur verið gott. Björt framtíð og Píratar fá víðast hvar gott fylgi á meðan fjórflokkurinn á víða undir högg að sækja. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, telur ástæðuna í meginatriðum vera þá að mikið rót hafi komist á hollustu kjósenda við flokkana í hruninu og líka í tíð vinstri stjórnarinnar. „Frá þeim tíma eru kjósendur opnari fyrir nýjungum. Framsóknarflokkurinn sýndi að vísu í fyrra að gömlu flokkarnir eiga alveg möguleika á þessu fylgi en hins vegar er núna sérstaklega góð aðstaða fyrir flokka sem hafa aldrei verið í ríkisstjórn,“ segir Gunnar Helgi. Að sögn Gunnars Helga eru málefnin ekki endilega vera helstu ástæðuna fyrir hinu góða gengi heldur endurspegli það meira óánægju kjósenda með það sem fyrir var.Grétar þór eyþórsson„Ég held að það sé alveg ljóst, hvort sem þú lítur á Bjarta framtíð eða Pírata, að þar eru ekki mjög skýrar málefnaáherslur í mörgum þeim málum sem sveitarfélögin fjalla um sérstaklega,“ segir hann. „Gott dæmi er Ísafjörður þar sem Björt framtíð samkvæmt könnun mældist með drjúgt fylgi áður en flokkurinn var kominn fram.“ Annar prófessor í stjórnmálafræði, Grétar Þór Eyþórsson, telur að meginlínurnar muni lítið breytast frá því sem komið hefur fram í nýjustu könnunum. „Auðvitað verða einhverjar sveiflur en miðað við þær kannanir sem eru að birtast í dag og héðan af fram að kosningum þá munu þær verða mjög nálægt lagi,“ segir Grétar. Spurður hvers vegna Björt framtíð og Píratar hafi náð fótfestu en ekki Dögun segir hann það vafalítið vinna með Bjartri framtíð og Pírötum að hafa komist inn á þing. „Dögun er að mælast á Akureyri og í Kópavogi með svipað fylgi og til Alþingis í fyrra. Flokkurinn er með heildstæðan stefnumálapakka en það er eins og þessi málflutningur nái ekki í gegn í þessari flóru,“ segir Grétar Þór.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira