Ellefu-bar sýknaður af skaðabótakröfu Randver Kári Randversson skrifar 5. júní 2014 17:30 Linda Mjöll ehf., sem rekur Ellefu-bar var sýknað af skaðabótakröfu vegna líkamstjóns. Vísir/GVA
Hæstiréttur sýknaði í dag félagið Lindu Mjöll ehf., og Vörð tryggingar af skaðabótakröfu manns sem varð fyrir árás dyravarða skemmtistaðarins Ellefu-bar árið 2009. Í héraðsdómi voru Linda Mjöll ehf., Vörður tryggingar, og annar dyravarða skemmtistaðarins dæmd til að greiða manninum um 3,8 milljónir króna í skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir af völdum árásarinnar. Dyravörðurinn áfrýjaði ekki niðurstöðu héraðsdóms. Málsatvik voru þau að í biðröð fyrir utan skemmtistaðinn rakst vinur stefnda í annan dyravarðanna og kom til smávægilegra stympinga milli þeirra. Kom þá til orðaskipta milli stefnda og dyravarðarins en ekki átaka. Þegar mennirnir sneru frá skemmtistaðnum og voru komnir nokkra spöl frá anddyri staðarins var stefndi tekinn hálstaki aftan frá, lagður í jörðina og við það missti hann meðvitund. Þá var sparkað í fótlegg hans eða hoppað á honum með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði mjög illa og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús. Stefndi hlaut varanlega 5% örorku vegna líkamstjónsins. Hæstiréttur taldi að framferði dyravarðanna væri svo langt frá starfsskyldum þeirra að vinnuveitandi þeirra, Linda Mjöll ehf., geti ekki talist ábyrgur fyrir líkamstjóni mannsins. Jafnframt komst Hæstiréttur að því að þar sem sýnt þótti að dyraverðirnir hefðu valdið líkamstjóninu af ásetningi geti Vörður tryggingar ekki talist bótaskyldur samkvæmt skilmálum ábyrgðartryggingar vegna Lindu Mjallar ehf., vinnuveitanda dyravarðanna. Málskostnaður í héraði og fyrir Hæstarétti var felldur niður.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira