Ráðuneyti fór ekki að lögum við skipun rektors Hólaskóla Randver Kári Randversson skrifar 13. júní 2014 10:45 Hólaskóli - Háskólinn á Hólum.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið fór ekki að lögum um búnaðarfræðslu þegar skipað var í embætti rektors Hólaskóla – Háskólans á Hólum í febrúar 2012. Þetta segir í áliti umboðsmanns Alþingis sem birtist í dag. Einn umsækjenda leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir skipun í embætti rektors Hólaskóla. Í skýringum mennta- og menningarmálaráðuneytisins til umboðsmanns kom fram að umsögn háskólaráðs Hólaskóla um skipun í embætti rektors hefði fengið „sambærilega stöðu og umsagnir háskólaráðs þegar um er að ræða ráðningu rektors í öðrum opinberum háskólum“. Með því væri átt við að „ráðuneytið hefði ekki lagt sjálfstætt mat á umsóknir, umfram það að meta hvort umsóknir uppfylltu lögbundnar lágmarkskröfur um starfsgengi umsækjenda og aðrar auglýstar hæfniskröfur fyrir embætti rektors“. Athugun setts umboðsmanns var afmörkuð við það hvort þessi tilhögun hefði verið í samræmi við lög. Settur umboðsmaður rakti forsögu 32. gr. laga nr. 57/1999, um búnaðarfræðslu, sem ákvörðunin byggðist á, og samspil ákvæðisins við 25. gr. sömu laga.Hann dró þá ályktun að ákvörðunarvald í málinu hefði verið hjá ráðherra og hann borið ábyrgð á skipun í embættið og allri meðferð málsins. Verkefni háskólaráðs hefði aftur á móti verið að vera lögbundinn umsagnaraðili en ráðherra hefði ekki verði bundinn af umsögn þess. Ráðherra hefði því borið að taka sjálfstæða ákvörðun um skipun í embættið út frá því hver var hæfasti umsækjandinn í ljósi þeirra málefnalegu og lögmætu sjónarmiða sem hann ákvað að leggja til grundvallar. Honum hefði bæði verið óheimilt að framselja ákvörðunarvaldið til háskólaráðs og að fallast á tillögu ráðsins án þess að leggja sjálfstætt mat á umsækjendur. Niðurstaða setts umboðsmanns var því að sú tilhögun sem mennta- og menningarmálaráðuneytið viðhafði við skipun í embætti rektors Hólaskóla hefði ekki verið í samræmi við 32. gr. laga nr. 57/1999. Mæltist hann til þess að ráðuneytið tæki framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem kæmu fram í álitinu.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Fleiri fréttir Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Sjá meira