Verulegir annmarkar við ráðningu rektors að mati umboðsmanns Alþingis Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. júní 2014 11:47 Erla Björk Örnólfsdóttir var skipuð rektor til fimm ára í febrúar 2012. Vísir/GVA
Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að ráðning á nýjum rektor Hólaskóla fyrir rúmur tveimur árum hafi ekki verið í samræmi við lög. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns á vef embættisins. Leitað var til umboðsmanns og kvartað yfir skipun í embættis rektors Hólaskóla - Háskólans á Hólum. Í skýringum mennta- og menningarmálaráðuneytisins kom fram að umsögn háskólaráðs Hólaskóla um skipun hefði fengið „sambærilega stöðu og umsagnir háskólaráðs þegar um er að ræða ráðningu rektors í öðrum opinberum háskólum“. Með því væri átt við að „ráðuneytið hefði ekki lagt sjálfstætt mat á umsóknir, umfram það að meta hvort umsóknir uppfylltu lögbundnar lágmarkskröfur um starfsgengi umsækjenda og aðrar auglýstar hæfniskröfur fyrir embætti rektors“. Athugun setts umboðsmanns var afmörkuð við það hvort þessi tilhögun hefði verið í samræmi við lög. Eftir að hafa rakið forsögu laga um búnaðarfræðslu, sem ákvörðun um skipun rektors byggðist á, dró hann þá ályktun að ákvörðunarvald í málinu hefði verið hjá ráðherra og hann borið ábyrgð á skipun í embættið og allri meðferð málsins. Verkefni háskólaráðs hefði aftur á móti verið að vera lögbundinn umsagnaraðili en ráðherra hefði ekki verði bundinn af umsögn þess. Er það niðurstaða umboðsmanns að tilhögun mennta- og menningarmálaráðuneytisins við skipun rektors hefði ekki verið í samræmi við lög. Mæltist hann til þess að ráðuneytið tæki framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem kæmu fram í álitinu. „Hér að framan er lýst verulegum annmörkum sem voru á meðferð málsins hjá mennta- og menningarmálaráðherra. Með vísan til dómaframkvæmdar og að teknu tilliti til hagsmuna þess sem hlaut embætti rektors tel ég þó ólíklegt að annmarkar þessir geti leitt til ógildingar á skipuninni,“ segir í álitinu sem lesa má í heild sinni hér. „Að öðru leyti verður það að vera verkefni dómstóla að fjalla um frekari réttaráhrif þessara annmarka, þar með talið um hugsanlega skaðabótaábyrgð. Að öðru leyti mælist ég til þess að ráðuneytið taki framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem koma fram í áliti þessu.“ Sex umsóknir bárust um stöðu rektors. Erla Björk Örnólfsdóttir var skipuð rektor til fimm ára í febrúar 2012.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira