Velunnari gaf SÁÁ 50 milljónir króna Jón Júlíus Karlsson skrifar 13. júní 2014 22:33
SÁÁ fékk 50 milljónir króna að gjöf frá fjársterkum einstaklingi til að byggja nýja álmu á sjúkrahúsinu Vogi. Yfirlæknir segir að vímuefnavandi Íslendinga sé vaxandi á ný í fyrsta sinn frá hruni. SÁÁ tók nýverið í notkun nýja álmu á sjúkrahúsinu Vogi. Nýja álman er ætluð veikustu sjúklingunum sem þurfa meiri umönnun en aðrir sjúklingar. Ekki var gert ráð fyrir að veita slíka þjónustu þegar elsti hluti sjúkrahússins var tekinn í notkun fyrir rúmum 30 árum. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að nýja álman breyti miklu fyrir sjúkrahúsið. „Þetta gjörbreytir aðstöðu hjúkrunarfólksins, það er að segja sjúkraliðana, hjúkrunarfræðingana og þess fólks sem er að annast sjúklingana. Aðstaðan fyrir þetta fólk hefur verið alveg óviðunandi,“ segir Þórarinn Kostnaður við nýbygginguna er um 150 milljónir króna. Byggingin var að öllu leyti fjármögnuð með framlögum velunnara SÁÁ. „Við fengum góða gjöf fyrir þessum spítala frá einstaklingi sem vill ekki láta nafns síns getið - 50 milljónir. Við söfnuðum öðru eins með framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum og erum enn að safna. Fullt af fólki sem hefur losnað út úr vandanum og er þakklátt og vill láta gott af sér leiða. Það hugsar oft með hlýjum huga til SÁÁ.“ Þórarinn segir að um 25 þúsund Íslendingar hafi leitað aðstoðar á Vogi á undanförnum 30 árum. Hann telur áfengis- og vímuefnavanda Íslendinga vera að aukast á ný. Hann er ósáttur við dræmt fjárframlag frá ríki og Reykjavíkurborg. „Það má marka það í fyrsta skipti eftir hrun að vandinn er aftur að byrja að vaxa og það er mjög tilfinnanlegt að við þurftum að draga úr starfseminni og þess gætir alls staðar úti í þjóðfélaginu. Það er meiri óróleiki og vandi út af vímuefnaneyslu og það er vegna þess að Vogur hefur ekki verið í fullum afköstum það sem af er ári,“ segir Þórarinn Tyrfingisson
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira