Telja að ríkisendurskoðandi hefði átt að víkja vegna fjölskyldutengsla Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 14. maí 2014 11:00 Sveinn Arason. vísir/gva
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd telur að Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, hefði átt að víkja vegna fjölskyldutengsla þegar stofnun hans vann að skýrslu um fjárhagskerfi ríkisins. Þá telur nefndin að kostnaður við verkefnið hafi verið mun meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og upplýst var fyrir Alþingi og telur nefndin það mjög gagnrýnisvert. Nefndin skilaði áliti sínu í gær. Nefndin bendir á að annar bróðir Sveins var skrifstofustjóri í fjármálaráðuneyti sem sat í stýrinefnd um kaup á kerfinu og hinn var framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna hjá Skýrr hf. sem seldi ríkinu kerfið og var síðar ritari þeirrar stýrinefndar sem sá um innleiðingu á kerfinu hjá Fjársýslunni. Því sé aðkoma Sveins á málinu til þess fallin að rýra trúverðugleika hans sem trúnaðarmanns þingsins. Kerfið var keypt af Skýrr árið 2001 og hljóðaði samningurinn upp á rúman milljarð. Árið 2009 þegar drög að skýrslu Ríkisendurskoðunar um málið unnin, var kostnaðurinn kominn í rúma fjóra milljarða. Forseti Alþingis óskaði eftir því í apríl 2004 að Ríkisendurskoðun gerði úttekt á því hvernig staðið var að undirbúning og framkvæmd við að koma á nýju hugbúnaðarkerfinu Orra (ORACLE) hjá ríkinu, bæði fjárhagslega og faglega. Ríkisendurskoðun varð við beiðninni en sá dráttur sem varð á að ljúka úttektinni og ganga frá skýrslu til Alþingis varð tilefni ítarlegrar fjölmiðlaumfjöllunar í september og október 2012, rúmum átta árum frá beiðni forseta Alþingis. Málið olli miklu fjaðrafoki á Alþingi eftir umfjöllun Kastljóss á sínum tíma. Þá hefur Ríkisendurskoðun verið töluvert gagnrýnd fyrir seinagang við vinnu skýrslunnar.
Tengdar fréttir Sveinn Arason: Upphlaup hjá fjárlaganefnd Ríkisendurskoðandi segir það hreint upphlaup hjá fjárlaganefnd að neita að afhenda honum frumvarp til umsagnar. Hann telur sinn enn njóta fulls trausts forseta Alþingis. 1. október 2012 12:13 Ríkisendurskoðandi taldi skýrsluna aðeins hafa sögulegt gildi Sífelldar breytingar á mannhaldi, stór verkefni og breyttar áherslur eftir hrunið 2008 og að lokum vangaveltur um hvort of langur tími væri liðinn frá því að því kerfið var keypt er meðal þess sem olli drættinum á úttekt Ríkisendurskoðunar á Oracle-kerfinu svonefnda. Þetta kemur fram í minnisblaði Ríkisendurskoðanda sem rætt var í forsætisnefnd Alþingis í dag. 15. október 2012 16:02 Vilja vita hvort Alþingi var gert viðvart um tafir á Oracle-málinu Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlar að senda Sveini Arasyni, ríkisendurskoðanda bréf, síðar í dag vegna Oracle málsins svokallaða. Málið snýst um launa- og bókhaldskerfi ríkisins, en kostnaður við innleiðingu þess fór algjörlega úr böndunum. Skýrsla sem Ríkisendurskoðun var falið að vinna um verkefnið hefur verið fjölda ára í vinnslu. 9. október 2012 13:08 Trúnaðurinn rofinn á milli þings og Ríkisendurskoðunar Ríkisendurskoðun fær fjáraukalögin ekki til umsagnar vegna trúnaðarbrests á milli Ríkisendurskoðunar og Alþingis. Starfsmaður stofnunarinnar kom gögnum til Kastljóss, að sögn formanns fjárlaganefndar. 29. september 2012 08:00 Sveinn Arason: "Það er við engan að sakast nema mig“ Ríkisendurskoðandi segist alfarið bera ábyrgðina á því að vinna við skýrslu um fjárhagskerfi ríkisins hafi dregist fram úr hófi. Hann segist ekki hafa íhugað afsögn vegna málsins. 25. september 2012 19:30 Mikil óánægja starfsfólks með tafir á skýrsluskilum Mikillar óánægju hefur gætt innan Ríkisendurskoðunar með hversu lengi hefur tekið að vinna skýrslu um innleiðingu bókhaldskerfis ríkisins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Kastljós RÚV greindi frá innihaldi skýrslunnar á mánudag, en þar kemur fram að kostnaður við verkefnið hafi farið langt fram úr áætlun. Skýrslan var í fjögur ár í vinnslu undir verkstjórn Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda, og önnur fjögur ár á borði Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda. 26. september 2012 07:30 Ríkisendurskoðandi hugsi yfir umfjölluninni um Oracle Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, er hugsi yfir atburðarrásinni í tengslum við birtingu Kastljóss á vinnugögnum og trúnaðarskýrslum Ríkisendurskoðunar, ekki síst yfir þætti núverandi formanns fjárlaganefndar, Björns Vals Gíslasonar, í málinu. Þetta kemur fram í svarbréfi hans sem rætt var á fundi forsætisnefndar Alþingis í hádeginu í dag. 15. október 2012 15:18 Ríkisendurskoðandi segir fjölskyldutengsl ekki hafa skipt máli Sveinn Arason ríkisendurskoðandi vísar því á bug að fjölskyldutengsl hafi orðið til þess að rannsókn Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisins á Oracle kerfinu hafi dregist. 28. september 2012 15:23 Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle komin Umdeild skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle fjárhags- og mannauðskerfi var birt á vef Ríkisendurskoðunar í dag. Í skýrslunni kemur fram að áætlanagerð vegna kaupa og innleiðingar á kerfinu hafi veirð ábótavant. Bæði hafi innleiðingartími verið vanáætlaður sem og stofnkostnaður kerfisins. Þá hafi heildarkostnaður kerfisins ekki verið metinn, eins og segir í skýrslunni. 30. október 2012 11:31 Mun skila skýrslunni í október Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur farið fram á það við Ríkisendurskoðun að stofnunin ljúki skýrslugerð vegna kaupa ríkisins á fjárhags- og mannauðskerfinu Oracle á árinu 2001, innleiðingar þess og reksturs, fyrir lok októbermánaðar. Stofnuninni var falið að gera skýrsluna í apríl árið 2004 en henni hefur enn ekki verið skilað. 28. september 2012 06:45 Þingmaður: Ríkisendurskoðandi fer yfir reikninga frá bróður sínum "Ríkisendurskoðandi er að endurskoða gjörðir Samfylkingarinnar nánast á hverjum degi og hann er líka að endurskoða fjármálaráðuneytið. Þar situr bróðir hans sem yfirmaður í rauninni á ríkiskassanum sjálfur,“ segir Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. 22. nóvember 2011 18:06 Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira
Sveinn Arason: Upphlaup hjá fjárlaganefnd Ríkisendurskoðandi segir það hreint upphlaup hjá fjárlaganefnd að neita að afhenda honum frumvarp til umsagnar. Hann telur sinn enn njóta fulls trausts forseta Alþingis. 1. október 2012 12:13
Ríkisendurskoðandi taldi skýrsluna aðeins hafa sögulegt gildi Sífelldar breytingar á mannhaldi, stór verkefni og breyttar áherslur eftir hrunið 2008 og að lokum vangaveltur um hvort of langur tími væri liðinn frá því að því kerfið var keypt er meðal þess sem olli drættinum á úttekt Ríkisendurskoðunar á Oracle-kerfinu svonefnda. Þetta kemur fram í minnisblaði Ríkisendurskoðanda sem rætt var í forsætisnefnd Alþingis í dag. 15. október 2012 16:02
Vilja vita hvort Alþingi var gert viðvart um tafir á Oracle-málinu Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlar að senda Sveini Arasyni, ríkisendurskoðanda bréf, síðar í dag vegna Oracle málsins svokallaða. Málið snýst um launa- og bókhaldskerfi ríkisins, en kostnaður við innleiðingu þess fór algjörlega úr böndunum. Skýrsla sem Ríkisendurskoðun var falið að vinna um verkefnið hefur verið fjölda ára í vinnslu. 9. október 2012 13:08
Trúnaðurinn rofinn á milli þings og Ríkisendurskoðunar Ríkisendurskoðun fær fjáraukalögin ekki til umsagnar vegna trúnaðarbrests á milli Ríkisendurskoðunar og Alþingis. Starfsmaður stofnunarinnar kom gögnum til Kastljóss, að sögn formanns fjárlaganefndar. 29. september 2012 08:00
Sveinn Arason: "Það er við engan að sakast nema mig“ Ríkisendurskoðandi segist alfarið bera ábyrgðina á því að vinna við skýrslu um fjárhagskerfi ríkisins hafi dregist fram úr hófi. Hann segist ekki hafa íhugað afsögn vegna málsins. 25. september 2012 19:30
Mikil óánægja starfsfólks með tafir á skýrsluskilum Mikillar óánægju hefur gætt innan Ríkisendurskoðunar með hversu lengi hefur tekið að vinna skýrslu um innleiðingu bókhaldskerfis ríkisins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Kastljós RÚV greindi frá innihaldi skýrslunnar á mánudag, en þar kemur fram að kostnaður við verkefnið hafi farið langt fram úr áætlun. Skýrslan var í fjögur ár í vinnslu undir verkstjórn Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda, og önnur fjögur ár á borði Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda. 26. september 2012 07:30
Ríkisendurskoðandi hugsi yfir umfjölluninni um Oracle Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, er hugsi yfir atburðarrásinni í tengslum við birtingu Kastljóss á vinnugögnum og trúnaðarskýrslum Ríkisendurskoðunar, ekki síst yfir þætti núverandi formanns fjárlaganefndar, Björns Vals Gíslasonar, í málinu. Þetta kemur fram í svarbréfi hans sem rætt var á fundi forsætisnefndar Alþingis í hádeginu í dag. 15. október 2012 15:18
Ríkisendurskoðandi segir fjölskyldutengsl ekki hafa skipt máli Sveinn Arason ríkisendurskoðandi vísar því á bug að fjölskyldutengsl hafi orðið til þess að rannsókn Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisins á Oracle kerfinu hafi dregist. 28. september 2012 15:23
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle komin Umdeild skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle fjárhags- og mannauðskerfi var birt á vef Ríkisendurskoðunar í dag. Í skýrslunni kemur fram að áætlanagerð vegna kaupa og innleiðingar á kerfinu hafi veirð ábótavant. Bæði hafi innleiðingartími verið vanáætlaður sem og stofnkostnaður kerfisins. Þá hafi heildarkostnaður kerfisins ekki verið metinn, eins og segir í skýrslunni. 30. október 2012 11:31
Mun skila skýrslunni í október Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur farið fram á það við Ríkisendurskoðun að stofnunin ljúki skýrslugerð vegna kaupa ríkisins á fjárhags- og mannauðskerfinu Oracle á árinu 2001, innleiðingar þess og reksturs, fyrir lok októbermánaðar. Stofnuninni var falið að gera skýrsluna í apríl árið 2004 en henni hefur enn ekki verið skilað. 28. september 2012 06:45
Þingmaður: Ríkisendurskoðandi fer yfir reikninga frá bróður sínum "Ríkisendurskoðandi er að endurskoða gjörðir Samfylkingarinnar nánast á hverjum degi og hann er líka að endurskoða fjármálaráðuneytið. Þar situr bróðir hans sem yfirmaður í rauninni á ríkiskassanum sjálfur,“ segir Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. 22. nóvember 2011 18:06