Innlent

Símanúmer víxluðust vegna uppsetningar á ljósneti

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
"Það er strax farið í að gera við þó stöðluð svör segi að það geti tekið þrjá virka daga,“ segir upplýsingafulltrúi Milu.
"Það er strax farið í að gera við þó stöðluð svör segi að það geti tekið þrjá virka daga,“ segir upplýsingafulltrúi Milu.
Bilanir urðu til þess að nokkrum símanúmerum í Hveragerði var víxlað þegar Mila ehf. vann að uppfærslu á kerfum og kerfisbreytingum vegna uppsetningar á ljósveitu þar í bæ. Þetta staðfestir Siggurrós Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Milu í samtali við fréttastofu.

Íbúi í Hveragerði hafði samband við fréttastofu í gærkvöldi og sagði frá þessu. Sá áttaði sig á því í gærkvöldi að annað símanúmer en hans eigið var tengt inn heim til hans. Hann kannaðist við fólkið sem átti númerið sem hann er nú kominn með. Konan hafi hringt heim til hans þegar hún var að leita að sínu eigin símanúmeri.

Hann sagði þetta nokkuð skondið en var hissa á því að engin tilkynning hefði borist til þeirra vegna málsins. Hvorki frá Milu né fjarskiptafyrirtækjunum. Þegar fréttastofa ræddi við hann í hádeginu í dag hafði hann enn ekkert heyrt vegna þessa og vissi ekki betur en að hann væri enn með símanúmer annars fólks tengt heim til sín.

Jafnframt var hann hissa á þeim svörum sem hann fékk þegar hann sjálfur hafði samband við fyrirtækin vegna málsins. Viðbrögðin hefðu verið þau að verkbeiðni væri í gangi vegna bilunar og það gæti tekið þrjá virka daga að fara yfir bilunina.

„Það er strax farið í að gera við þó stöðluð svör segi að það geti tekið þrjá virka daga,“ segir Sigurrós. Strax hafi verið hafist handa við viðgerðir og þeim ætti  að ljúka í dag.

Um hafi verið að ræða víxlanir á fjórum símanúmerum við tvær götur í Hveragerði. Einnig hafi komið upp bilanir með tvö önnur númer, þær bilanir hafi þó verið af örðum toga.

Verktakinn sem sér um framkvæmdina sendi út tilkynningu vegna málsins að sögn Sigurrósar. Sú tilkynning var þó ekki birt.

Hún segir bilanir sem þessar mjög sjaldgæfar og hún geti nánast fullyrt að þetta sé algjört einsdæmi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×