Símanúmer víxluðust vegna uppsetningar á ljósneti Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 14. maí 2014 13:42 "Það er strax farið í að gera við þó stöðluð svör segi að það geti tekið þrjá virka daga,“ segir upplýsingafulltrúi Milu.
Bilanir urðu til þess að nokkrum símanúmerum í Hveragerði var víxlað þegar Mila ehf. vann að uppfærslu á kerfum og kerfisbreytingum vegna uppsetningar á ljósveitu þar í bæ. Þetta staðfestir Siggurrós Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Milu í samtali við fréttastofu. Íbúi í Hveragerði hafði samband við fréttastofu í gærkvöldi og sagði frá þessu. Sá áttaði sig á því í gærkvöldi að annað símanúmer en hans eigið var tengt inn heim til hans. Hann kannaðist við fólkið sem átti númerið sem hann er nú kominn með. Konan hafi hringt heim til hans þegar hún var að leita að sínu eigin símanúmeri. Hann sagði þetta nokkuð skondið en var hissa á því að engin tilkynning hefði borist til þeirra vegna málsins. Hvorki frá Milu né fjarskiptafyrirtækjunum. Þegar fréttastofa ræddi við hann í hádeginu í dag hafði hann enn ekkert heyrt vegna þessa og vissi ekki betur en að hann væri enn með símanúmer annars fólks tengt heim til sín. Jafnframt var hann hissa á þeim svörum sem hann fékk þegar hann sjálfur hafði samband við fyrirtækin vegna málsins. Viðbrögðin hefðu verið þau að verkbeiðni væri í gangi vegna bilunar og það gæti tekið þrjá virka daga að fara yfir bilunina. „Það er strax farið í að gera við þó stöðluð svör segi að það geti tekið þrjá virka daga,“ segir Sigurrós. Strax hafi verið hafist handa við viðgerðir og þeim ætti að ljúka í dag. Um hafi verið að ræða víxlanir á fjórum símanúmerum við tvær götur í Hveragerði. Einnig hafi komið upp bilanir með tvö önnur númer, þær bilanir hafi þó verið af örðum toga. Verktakinn sem sér um framkvæmdina sendi út tilkynningu vegna málsins að sögn Sigurrósar. Sú tilkynning var þó ekki birt. Hún segir bilanir sem þessar mjög sjaldgæfar og hún geti nánast fullyrt að þetta sé algjört einsdæmi.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira