Lítið framboð gæti leitt til hærra verðs Samúel Karl Ólafsson skrifar 1. maí 2014 07:00 Segir að grásleppuveiðin hafi verið mun minni en í fyrra. Mynd/Hörður Sveinsson „
Grásleppuvertíðin hefur, það sem af er, gengið illa. Veiðin hefur verið mun minni en í fyrra og þátttaka hefur einnig verið minni,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Hann segir þennan minni áhuga aðallega skýrast af því að verðið fyrir hrognin sem sé í boði sé mjög lágt. „Þá telja menn að það svari ekki kostnaði að fara af stað í veiðarnar.“ Örn ímyndar sér þó að verðið muni hækka þegar ljóst verður að framboð á hrognum verður mun minna í ár en það var í fyrra. Veiðar Grænlendinga, sem eru sú þjóð sem veiðir á móti okkur og veiddi mest í fyrra, fara einnig mjög illa af stað. „Eins og staðan er í dag lítur út fyrir að það verði mun minna framboð á grásleppuhrognum á þessu ári, en hefur verið undanfarin ár. Ég ætla að vona að það verði til þess að verðið hækki og að karlarnir geti haft eitthvað upp úr þessu,“ segir hann. Veiðin hefur þó verið nokkuð góð það sem af er á Ströndum og hafa grásleppuveiðimenn sem róa frá Drangsnesi og Hólmavík veitt vel. Á heimasíðu Fiskistofu má sjá að veiðileyfi 162 báta hafa nú verið virkjuð. Í fyrra voru gefin út 284 leyfi en á vertíðinni 2012 voru þau 339 talsins.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Sjá meira