Styttist í sex ára afmæli haftanna 9. júlí 2014 10:15 Þorsteinn Víglundsson.
Afnám gjaldeyrishafta gæti leitt til veikingar krónunnar með tilheyrandi verðhækkunum hér innanlands og aukinni verðbólgu. Þrátt fyrir það telja Samtök atvinnulífsins (SA) að sú efnahagslega áhætta sem fylgir höftunum, og mun líklega skapast, sé meiri en sú sem gæti falist í afnámi þeirra. Þetta kom fram í grein Þorsteins Víglundssonar, framkvæmdastjóra SA, í Fréttablaðinu í gær. Þar rekur Þorsteinn verkefnið við afnám haftanna sem hann segir það mikilvægasta sem íslensk stjórnvöld standi frammi fyrir í dag. Þorsteinn segir aðstæður til afnáms mjög hagstæðar þar sem efnahagslífið sé í ágætu jafnvægi. „Lykilforsenda þess að hægt verði að koma í veg fyrir ofhitnun hagkerfisins er hratt afnám fjármagnshafta. Efnahagsleg áhætta afnáms hafta er mun minni en hættan sem fylgir enn einni rússíbanareið íslensks efnahagslífs með kunnuglegri kollsteypu í lok ferðar,“ segir Þorsteinn. Höftunum var komið á í nóvember 2008 eftir að landið hafði orðið fyrir barðinu á bankakreppu. Gengi krónunnar hafði þá lækkað og hætta á stórfelldu útstreymi fjármagns skapast. Það hefði getað valdið enn meiri gengislækkun og verðbólgu og því ákvað Seðlabankinn að hefta tímabundið útflæði gjaldeyrisins. Upphaflega áttu höftin að falla úr gildi haustið 2010. Afnám þeirra hefur dregist og vegur þar þyngst töf við uppgjör þrotabúa föllnu bankanna, eins og kemur fram í nýrri Skoðun Viðskiptaráðs Íslands. Á þeim rúmu fimm og hálfu ári sem liðin eru hefur ítrekað verið bent á þann efnahagslega kostnað sem höftunum fylgir. Viðskiptaráð hefur til dæmis áætlað að þau hafi kostað íslensk fyrirtæki um 80 milljarða króna í útflutningstekjur á síðasta ári. Höftin eru einnig sögð draga úr nýliðun og vexti íslenskra fyrirtækja og leiða til þess að sprotafyrirtæki færi starfsemi sína úr landi. Höftunum hefur því oft verið líkt við girðingu sem erlendir fjárfestar vilji ekki festast innan með fjármuni sína. Þorsteinn segir í grein sinni að óttinn við gengislækkun og meðfylgjandi verðbólgu sé líklegasta skýringin á „aðgerðaleysi stjórnvalda“ þegar komi að afnámi haftanna. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur að undanförnu svarað spurningum um afnám haftanna á þann veg að þau verði jafnvel afnumin í ár. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðasta mánuði sagði hann stjórnvöld hafa nýtt tímann vel til að kortleggja vandann. „Ég er með væntingar um að það verði stórir áfangar stignir á þessu ári,“ sagði Bjarni.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira