Settu hettu á höfuð hans og börðu með kúbeini Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. júlí 2014 14:42 Vísir/STEFÁN
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem grunaður er um aðild að grófri líkamsárás á dögunum. Málavextir voru þeir að lögreglunni barst tilkynning um klukkan 04:30 aðfaranótt sunnudagsins síðastliðinn um að ráðist hafi verið á konu í annarlegu ástandi. Hún talað hratt og óskýrt og reyndist vera í blóðugum fötum þegar lögreglan vitjaði hennar. Konan greindi frá því að hún hafi ásamt þremur öðrum farið til fundar við þrjá aðra menn í Hafnarfirði vegna peningaskuldar en mannamótin hafi fljótlega farið úr böndunum. Skömmu síðar hafi verið ákveðið að hittast aftur en þeim fundi lauk með því að konunni og einum þremenninganna var ýtt inni í bíl og þau keyrð í burtu. Í greinargerð lögreglustjórans kemur fram konan flúið með því að skríða út um glugga á bílnum. Manninum var hent út í Hafnarfirði með áverka á höfði, hugsanlega eftir kúbein. Samferðamaður konunnar greindi frá því í samtali við lögreglu að áður en þeir hafi sett hann inn í bifreiðina þá hafi þeir sett hettu yfir höfuðið á honum og ekið honum á einhvern ókunnugan stað þar sem þeir hafi farið út úr bifreiðinni og inn í hús. Þar hafi þeir síðan veitt honum enn frekari áverka og í kjölfarið ekið honum að í húsi Hafnarfirði. Lögregla eigi eftir að finna hvar þetta húsnæði sé en allt kapp sé lagt í að finna það sem fyrst en hugsanlegt sé að þar megi finna áhaldið sem brotaþoli segist hafa verið laminn með. Samkvæmt bráðabirgðavottorði er fórnarlambið höfuðkúpubrotið, nefbrotið og ristarbrotið. Þá hafi þurft að sauma þrjá skurði, tvo á enni og einn á kálfa. Rannsókn málsins er þó skammt á veg komið. „Það sé mat lögreglustjóra að hér sé um að ræða mjög grófa atlögu að lífi og heilbrigði brotaþola. Svo virðist vera sem árásin hafi verið algjörlega tilefnislaus. Þá hafi hann hlotið mjög alvarlega áverka og hending ein að ekki hafi farið verr. Það sé mat lögreglu að ef kærði verði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að reyna að hafa áhrif á framburð vitna og annarra samseka, koma undan vopnum og afmá öll önnur ummerki um árásina,“ segir meðal annars í greinargerðinni. Því hafi gæsluvarðhaldsúrskurðurinn verið staðfestur og rennur hann út 18. júlí.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Fleiri fréttir Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sjá meira