Sniglarnir koma upp bifhjólastæðum Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 8. júlí 2014 07:00 Brátt geta menn lagt bifhjólum í þar til gerð stæði um allan bæ. mynd/Íma Fönn Hlynsdóttir
Þótt gert sé ráð fyrir því í lögum að stæði séu til fyrir bifhjól á fjölmennustu stöðum þá sáust þess fá merki þar til Sniglarnir tóku sig til og eru nú að bæta úr. „Við fórum í það að búa til þessi skilti og höfum nú þegar fengið að koma þeim upp í Smáralind. Svo er Kringlan að detta inn og fleiri staðir,“ segir Hrönn Bjargar Harðardóttir, formaður Sniglanna. Leitað hefur verið til borgaryfirvalda og segir Hrönn að væntanlega verði slíkum stæðum komið fyrir við Hverfisgötu og á fleiri stöðum í höfuðstaðnum. Eins hefur verið sent erindi til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um að koma upp bifhjólastæðum við bókasafnið og Súfistann. Skipulags- og byggingarráð svaraði reyndar erindinu á þann veg að næg bílastæði væri að finna í miðbænum eftir klukkan sex síðdegis.Skiltið„Við viljum náttúrlega fá að leggja löglega og eins koma hjólunum af gangstéttum og öðrum stöðum þar sem þau eiga helst ekki að vera. Bæði geta þau valdið óþægindum fyrir vegfarendur og svo er þetta líka spurning um að fá að hafa þau í friði en virðing fyrir eignum manna er stundum takmörkuð þegar hjólin eru ekki á sérstökum stæðum.“ Mikið var um að vera hjá Sniglunum um helgina en þá voru þeir með landsmót í Húnaveri sem einnig var afmælishátíð því Sniglarnir fagna 30 ára afmæli í ár.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Fleiri fréttir Loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Sjá meira