Ákærð fyrir ummæli á Facebook: Sagði oddvitann hafa smjaðrað út traktor Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. júlí 2014 15:34 Vísir/Getty
Konu á þrítugsaldri er gefið að sök að hafa ritað ærumeiðandi aðdróttanir á Facebook um þáverandi oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps í nóvember í fyrra en mál yfir henni var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í dag. Hún er ákærð fyrir að hafa ritað ummælin á samskiptasíðuna þann 24. nóvember 2013 og voru þau í birtingu til 27. sama mánaðar. Athugasemd hennar beindist að fyrrgreindum oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps, Guðbjarti Gunnarssyni, en í henni ýjaði konan að því að hann hafi þegið mútur frá verslunareiganda í hreppnum. Hún sagði oddvitann hafa „smjaðrað“ fyrir verslunareigandanum sem hafi launað Guðbjarti flaðrið með nýjum traktor. Í samtali við Vísi segir Guðbjartur að „auðvitað hafi ekki verið fótur fyrir þessum ásökunum konunnar“, ellegar hefði hann ekki ákveðið að fara með málið fyrir dóm. Hann segir að hann hafi gefið konunni kost á því að draga ummælin til baka, sem hún gerði, en hún eyddi ummælunum sem fyrr segir að fjórum dögum liðnum. Að mati Guðbjarts dró konan ummælin þó til baka með slíkum hætti að það hafi í raun gert gert illt verra. „Þegar hún fjarlægði athugasemdina skrifaði hún á Facebook eitthvað á þá leið hún vildi ekki meiða viðkvæma sálir en að sannleikur væri alltaf sannleikur,“ segir Guðbjartur og bætir við að því hafi það „eina í stöðunni verið að láta málið farið sína leið.“ Verði hún fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér sekt eða allt að eins árs fangelsisdóm. Konan neitaði sök í héraðsdómi í dag.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira