„Svaraðu spurningunni“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. apríl 2014 17:09 Helgi Hjörvar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. vísir/daníel/gva „
Af því að nú er liðið eitt ár frá alþingiskosningum, þá er kannski kominn tími til að spyrja hæstvirtan forsætisráðherra „hvar eru 300 milljarðarnir?“.“ Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag og beindi orðum sínum til Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar, forsætisráðherra. „Ég á auðvitað við þá 300 milljarða sem boðaðir voru að myndu skapast í samningum við þrotabú föllnu bönkunum. “ Þá óskaði hann eftir að heyra frá forsætisráðherra hvað hafi verið gert og til hvað ráðstafana eigi að grípa til að tryggja það að peningarnir skili sér og bætir við að ekki sé raunsætt að halda að 300 milljarðar fáist í þessum samningum. Í kosningastefnuskrám Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks mátti finna loforð um skuldavanda heimilanna og lagði Framsóknarflokkurinn höfuðáherslu á að nýta það svigrúm sem skapast við uppgjör þrotabúa bankanna til að leiðrétta stökkbreytt verðtryggð húsnæðislán. Við þetta áttu að fást þrjú hundruð milljarðar. Stjórnarandstaðan fullyrðir að þrjú hundruð milljörðum hafi verið lofað og að þeir hafi allir átt að nýtast í skuldalækkanir heimilanna. „Nú er talað um 300 milljarða svigrúm við uppgjör slitabúa föllnu bankanna og afléttingu hafta. Ég hef aldrei sagt að það yrðu endilega 300 milljarðar í því svigrúmi. Ég hef hins vegar svarað því þegar ég er spurður að ég teldi að 300 milljarðar væri ekkert sérstaklega hátt mat hvað varðar hugsanlegt svigrúm,“ svaraði Sigmundur. Tillögur um skuldaniðurfellingar upp á 150 milljarða liggja nú fyrir og hefur verið greint frá því að sækja eigi 80 milljarða króna til kröfuhafa föllnu bankana. Þá eigi að fjármagna 70 milljarða með skattleysi á séreignarlífeyrissparnað skuldara. „Þingmaður er greinilega farinn að gera ráð fyrir því að svigrúmið styttist og verði til og þar með að auka væntingarnar til að segja „300 milljarðar er ekki nóg. Það þarf meira,““ sagði Sigmundur. Í tvígang heyrðist kallað úr þingsal. „Svaraðu spurningunni.“
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira