Uggandi yfir atvinnuástandi á Flateyri Sveinn Arnarsson skrifar 12. desember 2014 08:15 Byggðastofnun hefur auglýst samstarf um 300 tonna sértækan byggðakvóta.
Smábátasjómenn á Flateyri hafa sent Byggðastofnun bréf þar sem þeir óska eftir samstarfi um úthlutun sérstaks byggðakvóta til vinnslu í byggðarlaginu. Formaður íbúasamtakanna á Flateyri vonast eftir breiðri samstöðu um veiðar og vinnslu, Flateyri til heilla. Forsaga málsins er að Arctic Oddi hætti bolfiskvinnslu á Flateyri. Fyrirtækið var með samning um sértækan byggðakvóta frá Byggðastofnun og hefur hann verið auglýstur samkvæmt lögum. Smábátasjómenn eru hræddir um að sértæki byggðakvótinn gæti sett staðbundna útgerð í ákveðna óvissu. Guðmundur Björgvinsson, formaður íbúasamtaka Flateyrar, vonar að samvinna aðila á svæðinu geti styrkt búsetuskilyrði íbúa og tryggt atvinnuöryggi á staðnum. „Markmið Byggðastofnunar er að tryggja vinnslu á Flateyri og efla þannig byggðina. Því skiptir það miklu máli að breið sátt náist meðal allra aðila sem sinna veiðum frá Flateyri að vera ekki útundan,“ segir Guðmundur. Hann telur einnig hættulegt ef eitt fyrirtæki verði of ráðandi í litlu sveitarfélagi. „Að mínu mati er þessi sértæki byggðakvóti, sem Byggðastofnun gerir samning um við fyrirtæki, að sanna sig, að hann geti skipt sköpum fyrir smærri byggðalög. Við þurfum bara að tryggja að sú staða komi ekki upp að aðeins eitt fyrirtæki geti staðið í útgerð á svæðinu.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Tilbúin að takmarka krónutölu og íslensk skólastúlka verður fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira