Starfsmenn mótmæltu niðurskurði Sveinn Arnarsson skrifar 20. nóvember 2014 07:15 Bæjarstarfsmenn í Reykjanesbæ mættu á bæjarstjórnarfund og mótmæltu skertum greiðslum. Mynd/Víkurfréttir
Mikillar óánægju gætir meðal starfsmanna Reykjanesbæjar með fyrirhugaðar niðurskurðarhugmyndir bæjarins. Fjölmenntu bæjarstarfsmenn af því tilefni á fund bæjarstjórnar í gær og mótmæltu áformum um að lækka útgjöld vegna bifreiðastyrkja og yfirvinnu starfsmanna. Áætlað er að minnka útgjöld til þessara liða um 250 milljónir króna. Formaður Starfsmannafélags Suðurnesja segir mikinn óróa í fólki. Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir þetta vera hluta af 900 milljóna króna hagræðingaraðgerð sem þurfi að fara í. „Aðalástæðan fyrir þessum aðgerðum er sú að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur krafist þess að bæjarstjórn taki á sínum málum því ekki hefur gengið sem skyldi á síðustu árum. Ef við getum ekki staðið okkur þá tekur eftirlitsnefnd yfir reksturinn,“ segir Friðjón. Stefán B. Ólafsson, formaður Starfsmannafélags Suðurnesja, segir mikinn óróleika í kerfinu og starfsmenn uggandi um hag sinn. Lítið samráð hafi verið við starfsmenn bæjarins með þessar áætlanir. „Það þarf fyrst og fremst að vera ákveðið samráðsferli við starfsmenn. Við erum að vinna þetta með okkar lögmönnum. Það sem þeir eru að skoða er hvort ákvæði um hópuppsagnir eigi við,“ segir Stefán. Að sögn Stefáns er fólk á mismunandi stað í lífinu og því komi þetta misjafnlega niður á fólki. „Þetta er áfall fyrir fólk sem er búið að vera á fínum launum í langan tíma og fer að lenda í niðurskurði núna. Tala nú ekki um ef einhverjir eru á síðustu árum starfsævi sinnar og lenda nú í að laun þeirra skerðast. Það gæti þá þýtt skerðingu á lífeyrisréttindum fólks,“ segir Stefán sem kveður samráðið vanta og að starfsmenn viti lítið um málið. „Við erum ekki búin að sjá neina útlistun eða útfærslu á hvernig þetta verði gert. Því er starfsfólkið uggandi yfir að laun þess skerðist. Óvissan vegna ýmissa þátta er erfið en vonandi fer að skýrast hvernig þetta er hugsað.“ Friðjón Einarsson segir aðgerðirnar óumflýjanlegar. „Reykjanesbær greiðir á sjötta hundrað milljónir á ári í bílastyrki og yfirvinnu. Við verðum að lækka þá tölu um helming. Það er ekki verið að segja upp neinum starfsmanni bæjarins eða hreyfa við föstum launum fólks.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira