Innlent

Fann kjötafganga í fjöru

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þessi frágangur þykir ekki til fyrirmyndar.
Þessi frágangur þykir ekki til fyrirmyndar. Aðsend/Ursula Jünemann
Hjón á heilsubótargöngu gengu fram á kjötafganga í friðlandinu við Varmárósa í Mosfellsbæ. Ekki er vitað hver kom úrganginum fyrir í fjörunni.

„Við maðurinn minn vorum á göngu og tókum eftir óvenjumörgum fuglum á svæðinu. Er við könnuðum málið nánar þá kom það í ljós að einhver hafði skilið bein og lambakjötsafganga eftir á víðavangi,“ segir Ursula Jünemann sem gerði heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa Mosfellsbæjar viðvart og voru hræin fjarlægð hið snarasta.

„Þessu hefur verið komið fyrir þarna yfir nótt því við gengum þarna daginn áður og þá var ekkert að sjá,“ bætti Ursula við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×