Samið um sjúkraflutninga Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 10. nóvember 2014 07:00 Nýi samningurinn um sjúkraflutninga staðfestur. fréttablaðið/Gva
Í nýjum samningi milli Sjúkratrygginga Íslands og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, SHS, um sjúkraflutninga, sem undirritaður var í gær, segir að greiðslur fyrir þjónustuna taki að hluta til mið af fjölda sjúkraflutninga í stað eingöngu fastra mánaðarlegra greiðslna áður. Þannig felst greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands og Landspítala annars vegar í föstum mánaðarlegum greiðslum og hins vegar í greiðslum fyrir hvern flutning. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi sjúkraflutninga verði um 23 þúsund á ári. Samningurinn um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu, sem er til sex ára, er gerður á grundvelli fjárveitinga til verkefnisins og byggir að meginstofni á bráðabirgðasamningi um sjúkraflutninga sem gerður var í sumar. Hann tekur til allra bráðaflutninga auk flutninga fyrir Landspítala og aðrar stofnanir, að því er segir í fréttatilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands. Þar segir jafnframt að samhliða undirritun samningsins hafi verið gengið frá samkomulagi um sérstakt uppgjör vegna þjónustu SHS frá 1. janúar 2012 til 30. júní 2014. SHS sinnti á þessu tímabili sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að enginn samningur hafi þá verið í gildi um þjónustuna. Með samkomulaginu verður fellt niður dómsmál sem SHS hafði höfðað gegn íslenska ríkinu vegna greiðslna fyrir þjónustu á fyrrgreindu tímabili.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira