Sveitarstjórnarmenn ósáttir við hugmyndir iðnaðarráðherra Sveinn Arnarsson skrifar 10. júlí 2014 07:00 Breytingar á raforkulögum fara illa í sveitarstjórnarmenn
Nokkurrar óánægju gætir meðal sveitarstjórnarmanna á landinu með hugmyndir iðnaðarráðherra um ný raforkulög sem takmarka skipulagsvald sveitarfélaga. Í frumvarpinu verður með ýtarlegum hætti kveðið á um hvernig standa skuli að gerð áætlunar um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Ágreiningurinn snýr aðallega að c-lið níundu greinar sem segir að sveitarfélögum beri að endurskoða aðalskipulag eigi síðar en innan fjögurra ára frá samþykktri kerfisáætlun og samræma skipulag vegna verkefna. Einnig ber sveitarfélögum að tryggja að skipulagsmál hindri ekki framgang þeirra verkefna sem eru á staðfestri þriggja ára áætlun.Bergur Álfþórsson formaður bæjarráðs VogaBergur Álfþórsson er formaður bæjarráðs sveitarfélagsins Voga. Sveitarfélagið Vogar hefur staðið í ströngu vegna hugmynda um lagningu háspennulína í sveitarfélaginu vegna hugsanlegrar atvinnuuppbyggingar í Helguvík. „Það er morgunljóst að sérhver sveitarstjórnarmaður getur ekki verið ánægður ef skipulagsvaldið er af honum tekið eða sett undir einhverjar stofnanir úti í bæ. Sveitarfélögin hljóta að stýra því hvernig þau skipuleggja eða framkvæma í sínu landi,“ segir Bergur. guðmundur baldvin guðmundsson formaður bæjarráðs AkureyrarNý Blöndulína hefur verið á teikniborðinu lengi og hefur forstjóri Landsnets sagt sveitarfélögin hafa dregið lappirnar í skipulagsvinnu sinni. Guðmundur Baldvin Guðmundsson er formaður bæjarráðs Akureyrar. Hann tekur í sama streng og Bergur. „Við erum aðeins byrjaðir að horfa á þetta. Fljótt á litið er verið að færa valdið frá sveitarfélögunum, við getum horft á þetta þannig. Það er mjög mikilvægt að minni sveitarfélögin átti sig einnig á þessum breytingum. Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs Skagafjarðar, telur ríkisvaldið vera komið inn á varhugaverðar brautir. „Það hefur verið vilji okkar að skipulagsvaldið sé í höndum sveitarfélaga og það hefur ekkert breyst. Mér finnst þetta við fyrstu sýn vera svolítið skrýtið og vega að skipulagsvaldinu.“ Stefán Vagn veltir vöngum um hvort þessi lagasetning geti haft fordæmisgildi gagnvart öðrum sviðum grunnkerfisins. „Megum við eiga von á því að þetta geti haft þau áhrif að aðrir þættir er varða skipulagsvald sveitarfélaganna séu einnig í hættu?“
Tengdar fréttir Minni völd í héraði með nýjum lögum Frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun takmarka skipulagsvald sveitarfélaga. Sveitarfélögum er gert skylt að setja nýjar raflínur á skipulag hjá sér ef framkvæmdir hafa verið samþykktar hjá Orkustofnun. 9. júlí 2014 08:30 Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Fleiri fréttir Sérsveitaraðgerð á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira
Minni völd í héraði með nýjum lögum Frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun takmarka skipulagsvald sveitarfélaga. Sveitarfélögum er gert skylt að setja nýjar raflínur á skipulag hjá sér ef framkvæmdir hafa verið samþykktar hjá Orkustofnun. 9. júlí 2014 08:30