Ekur með íslenskan fisk til tuga borga í Danmörku og Svíþjóð Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 4. júlí 2014 12:00 Guðbjörn Elíson og Amanda Ingibjörg Einarsdóttir, eiginkona hans, við bílinn sinn sem er hlaðinn íslenskum matvælum.
Fjórum sinnum á ári ekur Guðbjörn Elíson, eigandi netverslunarinnar Islandsfisk, frá Varberg á vesturströnd Svíþjóðar til viðskiptavina sinna í mörgum tugum borga og bæja í Svíþjóð og Danmörku með frystan fisk, lambakjöt og sælgæti frá Íslandi. „Fjöldi viðskiptavina á skrá hjá okkur er um 2.500 og þeim fjölgar ört. Venjulega ek ég með vörur til 300 til 400 viðskiptavina í hverri ferð. Mikill meirihluti viðskiptavina hefur verslað við okkur frá því að við stofnuðum netverslunina 1990,“ segir Guðbjörn sem einnig er farinn að aka með íslensk matvæli til annarra landa Norður-Evrópu. Hann kveðst gista á hótelum á ferðum sínum og fá þar rafmagn fyrir litla vörubílinn sinn sem í er bæði frystir og kælir. Það eru ekki bara Íslendingar í þessum löndum sem eru sólgnir í íslenska matinn, að sögn Guðbjarnar. „Þetta spyrst út mann frá manni. Svíar eru til dæmis um þriðjungur viðskiptavina netverslunarinnar. Svíar og Danir sem smakka íslenska fiskinn verða fastir viðskiptavinir og þeir fara á hnén og biðja mig um að hætta ekki þessum ferðum. Dönsk kona sem er viðskiptavinur hjá mér lét systur sína, sem býr á vesturströnd Svíþjóðar og er sjávarlíffræðingur, vita af netversluninni og nú versla þrettán manns í kringum hana við mig. Svíarnir vilja heldur kaupa frysta fiskinn frá Íslandi en ferska fiskinn hér.“ Fiskur er sú vara sem mest er keypt í netversluninni, að sögn Guðbjarnar. „Vinsælasta varan er sjófryst ýsuflök en línufiskur sækir mikið á. Þar á eftir kemur lambakjötið. Ég er alltaf með saltkjöt, svið og slátur til sölu og árstíðabundna vöru eins og hangikjöt og konfekt um jól og þorramat á þorranum auk páskaeggja um páska.“ Guðbjörn selur ekki bara einstaklingum íslensk matvæli heldur selur hann einnig til veitingastaða, dagheimila, stóreldhúsa og verslana. „Ég sel í 20 búðir hér í sýslunni. Þetta er bara rétt að byrja. Gæði íslenska matarins spyrjast fljótt út.“ Viðskiptavinir islandsfisk.se þurfa ekki að vera í neinum vandræðum með matreiðsluna því að á vef netverslunarinnar má sjá uppskriftir að djúpsteiktum ýsuflökum með camembert-fyllingu, karríplokkfisk og saltfiskrúllum svo dæmi séu tekin.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira