Strætó fór 700 milljónum fram úr samningum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 3. júlí 2014 07:00 Félag hópferðaleyfishafa hyggst óska eftir lögreglurannsókn á mismun fjárhæða í útboðssamningi og raungreiðslum til Hagvagna frá Strætó bs. Fréttablaðið/Heiða
Félag hópferðaleyfishafa hyggst óska eftir því við lögreglu að hún rannsaki greiðslur frá Strætó bs. til undirverktaka sem unnið hafa fyrir Strætó í framhaldi af útboðum. Útboð á akstri almenningsvagna innan höfuðborgarsvæðisins af hálfu Strætó bs. fór fram árið 2010. Í kröfu félagsins til lögreglunnar kemur fram að Strætó hafi greitt rúmlega 700 milljónir umfram útboðssamninga frá árinu 2010 til Hagvagna hf. sem var lægstbjóðandi í útboðinu. Er óskað eftir því að lögreglan kanni sérstaklega reikninga sem standa að baki þessum viðskiptum og skýri þennan mismun sem og þann akstur sem standi að baki umræddum reikningum.Björn Jón Bragason, framkvæmdastjóri Félags hópferðaleyfishafa.„Endurskoðandi var fenginn til að framreikna tölur miðað við vísitölugrunninn í samkomulaginu við Hagvagna. Þá kemur í ljósi þessi mikli munur, um 700 milljónir króna. Stjórn félagsins ákvað því að grípa þyrfti til aðgerða vegna þessa,“ segir Björn Jón Bragason, framkvæmdastjóri félagsins. Í kröfunni segir að með því að greiða ákveðnum aðilum hærra verð en samið var um á grundvelli útboðs sé jafnvægi þeirra sem tóku þátt í útboðinu raskað. Þá verði samfélagið af þeim sparnaði, skilvirkni og samkeppni sem útboð eigi að stuðla að. „Okkur grunar að það sé maðkur í mysunni en viljum ekki fullyrða neitt. Það er þó full ástæða til að fram fari rannsókn á því hverju þetta sæti,“ segir Björn Jón. „Þetta á sér allt eðlilegar skýringar,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, upplýsingafulltrúi Strætó. Hann bendir á að í fyrsta lagi hafi samningurinn ekki tekið gildi fyrr en í ágúst 2010 og því séu greiðslur hluta þess árs eftir allt öðrum samningi. Það verði að taka með í reikninginn þegar horft er til árs uppgjörs 2010 en Strætó eigi eftir að rýna þessar tölur betur.Kolbeinn Óttarsson Proppé upplýsingafulltrúi Strætó bs.Þá geti áætlanir tekið breytingum enda ekki hægt að festa akstur almenningsvagna mörg ár fram í tímann. Þannig sé til að mynda kveðið á um það hvernig greiða skuli fyrir fjölgun aksturstíma á samningstímanum í samningnum. „Á umræddu tímabili, árin 2010 til 2014, hefur orðið mikil aukning á akstri á vegum Strætó bs., ekki síst frá árinu 2012 þegar Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisvaldið gerðu með sér samning um eflingu almenningssamgangna. Sem dæmi má nefna að akstur Hagvagna hefur aukist um tæp 30 prósent á samningstímanum og því eðlilegt að greiðslur til þeirra hafi aukist að viðbættum verðlagsbreytingum,“ segir Kolbeinn.Yfirlýsing frá Strætó bs. í kjölfar birtingar þessarar fréttar:Fullyrt er í Fréttablaðinu og Vísi í dag, og haft eftir framkvæmdastjóra Félags hópferðaleyfishafa, að Strætó hafi farið fram úr samningum við Hagvagna og greitt fyrirtækinu 700 milljónum meira en kveðið er á um í samningum. Strætó bs. vísar þessum dylgjum og rógburði um að fyrirtækið hafi farið fram úr samningum heim til föðurhúsanna. Allar greiðslur til Hagvagna, og annarra undirverktaka, hafa verið eftir þeim samningum sem gerðir voru árið 2010. Það er leitt að fjölmiðlar hafi slegið vitleysunni upp, þrátt fyrir að hafa fengið skýringar á ákvæði um aukningu aksturstíma í samningnum.Samningarnir gera beinlínis ráð fyrir því að hægt sé að auka akstur, og þar með greiðslur fyrir hann, um allt að 40% án þess að endursemja um grunneiningaverð. Akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist umtalsvert á samningstímanum og greitt hefur verið fyrir það, eftir ákvæðum samningsins. Akstur Hagvagna hefur til að mynda aukist um 28,8% og fyrir það hefur verið greitt eftir samningnum. Það er því röng fullyrðing að farið hafi verið fram úr samningi, hann gerir beinlínis ráð fyrir möguleikanum á akstursaukningu og greiðslum í samræmi við það.Í útboðsskilmálum og samningnum segir (liður B.1.2):Á samningstímanum geta breytingar orðið á verkinu og fjölda aksturstíma fækkað eða fjölgað. Einingaverð skulu vera óbreytt fyrir alla aksturstíma ef breytingar á verkinu eru innan 25% fækkun aksturstíma og 40% fjölgun aksturstíma. Tökum dæmi. Samið er um einingarverð, þannig að ein eining kostar 100 krónur. Við er bætt ákvæði sem segir að magnið geti aukist um allt að 40% eða dregist saman um allt að 25% án þess að endursemja þurfi um verðið. Það þýðir að Strætó bs. getur keypt 1,4 einingar á 140 krónur. Í tilfelli Hagvagna keypti Strætó 1,288 einingar og hefði tilbúna einingarverðið í þessu dæmi gilt hefði fyrirtækið borgað fyrir þær 128,8 krónur. Það hljóta allir að skilja að ef Strætó má kaupa 1,4 einingar á umsömdu verði en kaupir ekki nema 1,288 þá er fyrirtækið varla að fara fram úr samningum.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Fleiri fréttir Loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Sjá meira