Tíundi hver kennari ekki undirbúinn fyrir öll fög Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 3. júlí 2014 08:53 Athugun á kennslu kennara er verulega miklu minni hér á landi en í TALIS-löndum að meðaltali. vísir/gva
Hlutfall grunnskólakennara á Íslandi sem segja námsefni, kennslufræði og reynslu í þeim námsgreinum sem þeir kenna í skólanum hafa verið hluta af menntun þeirra eða þjálfun er lágt í samanburði við önnur lönd. Þetta kemur fram í TALIS-rannsókninni sem var gerð á síðasta ári. Rannsókninni var beint til kennara og skólastjórnenda í 34 löndum og er ætlað að veita innsýn í starfsaðstæður kennara og kennsluhætti í löndunum. Menntun kennara í hinum löndunum í rannsókninni virðist miðast meira við einstakar kennslugreinar í samanburði við kennaramenntun hér á landi. Ríflega einn af hverjum tíu kennurum hefur ekki fengið neina menntun eða reynslu í nokkurri þeirra námsgreina sem viðkomandi kennir. Aðeins rúmlega fjörutíu prósent íslenskra kennara segja að þeir hafi fengið undirbúning í kennaranámi fyrir allar þær námsgreinar sem þeir kenna. Íslenskir kennarar eru í heildina heilum tíu prósentustigum fyrir neðan meðaltal TALIS hvað varðar hversu undirbúnir þeir telja sig vera fyrir kennsluna.Tengt undirbúningi hefur eingöngu þriðjungur kennara hér á landi tekið þátt í nýliðaþjálfun í upphafi ferilsins. Störf íslenskra kennara eru einnig sjaldan metin á formlegan hátt eða í tugum prósenta færri tilfella en í samanburðarlöndunum. Dæmi um starfsmat er bein athugun stjórnenda á kennslu, nemendamat eða mat á þekkingu kennarans á kennsluefni. Þriðjungur íslenskra skólastjóra metur aldrei kennara formlega og tæplega helmingur gerir það einu sinni á ári. Mesti munurinn á TALIS og Íslandi snýr þó að samstarfi kennaranna því um tvöfalt fleiri kennarar á Íslandi fylgjast aldrei með bekkjum annarra kennara í þeim tilgangi að meta starfið.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira