Sakar forsvarsmann Landsnets um lygar Sveinn Arnarsson skrifar 30. júní 2014 07:30 Raforkuflutningar til Eyjafjarðar eru í molum og úrbóta er þörf.
Fráfarandi formaður Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) sakaði forstjóra Landsnets um að fara með ósannindi þegar hann sagði sveitarfélögin hafa dregið lappirnar við að koma betri byggðalínu til Eyjafjarðar. „Það er grátlegt þegar fulltrúar opinberra einokunarfyrirtækja láta hafa svona eftir sér,“ sagði Oddur Helgi Halldórsson, fráfarandi formaður AFE og bæjarfulltrúi á Akureyri síðastliðna tvo áratugi, í ræðu á ársfundi AFE á föstudag. Þetta var síðasta embættisverk Odds Helga þar sem hann hætti í bæjarstjórn eftir sveitarstjórnarkosningarnar í lok maí síðastliðins. Í ræðu sinni sagði hann að málefni byggðalínunnar hefðu svo sannarlega ekki strandað á sveitarstjórnum á Eyjafjarðarsvæðinu. Fréttablaðið birti í síðustu viku frétt um að raforkuflutningar til Eyjafjarðar væru í molum. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, sagði þessi mál vera í ákveðinni biðstöðu. Á teikniborðinu væri um tólf til fimmtán milljarða framkvæmd af þeirra hálfu til að styrkja orkuflutninga til Eyjafjarðar um nýja Blöndulínu, svokallaða Blöndulínu þrjú. Hins vegar stæði allt fast í skipulagsvinnu þeirra sveitarfélaga sem línan mun fara í gegnum. Þessu er Oddur Helgi ósammála.Oddur Helgi Halldórsson Fráfarandi formaður AFE.Mynd/Rúnar Þór„Eitt verð ég að koma inn á og mótmæla, það er umfjöllun í fjölmiðlum um orkuleysi fjarðarins, þar sem Landsnet kennir sveitarfélögunum um. Ég segi hreint út að það er ekki satt að það sé okkur sveitarfélögunum að kenna. Sveitarfélögin á svæðinu hafa allan tímann verið áfram um það að aðstoða landsnet við að leggja þessar línur,“ sagði Oddur í ræðu sinni. Hann sagði Landsnet ekki hafa léð máls á samstarfi við sveitarfélögin um lausnir, heldur hafi barið höfðinu við steininn og viljað gera þetta algerlega eftir sínu höfði. „Ég fullyrði, til dæmis hvað viðkemur Akureyrarbæ, að ekki hefur strandað á okkur að finna leið fyrir þá fyrir jarðstreng í gegnum bæjarlandið. Það er grátlegt þegar fulltrúar opinberra einokunarfyrirtækja láta hafa svona eftir sér.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira