Grjótkrabbi leggur undir sig ströndina Svavar Hávarðsson skrifar 30. júní 2014 07:00 Grjótkrabbi
Grjótkrabbi, sem fyrst varð vart hér við land árið 2006, hefur nú dreift sér við strendur landsins og virðist hann hafa tekið sér bólfestu við vesturströnd landsins og við Vestfirði að sögn Halldórs Pálmars Halldórssonar, forstöðumanns Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurnesjum. Einnig hefur hann frétt af einum sem barst á land í Skagafirði en hann á eftir að fá það staðfest að um grjótkrabba sé að ræða. Jónas Jónasson hjá Hafrannsóknastofnun á Ísafirði sagði hins vegar að um grjótkrabba væri að ræða. Útbreiðslan er því nokkuð ör því hann fannst í Breiðafirði einungis tveimur árum eftir að hann fannst fyrst í Hvalfirðinum. Í fyrra varð hans síðan vart á Vestfjörðum. Óvíst er hver áhrif hans geta orðið í fæðukerfinu en krabbinn étur allt sem að kjafti kemur. Enginn skortur virðist þjaka hann hvað það varðar, síst af öllu í Hvalfirði þar sem hann nær venjulega stærð á við stærstu grjótkrabba í sínum náttúrulegu heimkynnum við austurströnd Norður-Ameríku og ber því um 15 sentímetra breiðan skjöld. Þrátt fyrir nafnið heldur krabbinn sig á mjúkum botni og þurfa menn ekki að vera reyndir sjómenn til að veiða hann en krakkar á leikjanámskeiði á Ísafirði fengu einn í gildru sína í fyrradag.Halldór Pálmar HalldórssonGrjótkrabbi er herramannsmatur en Halldór segir eflaust nokkur ár í það enn að hægt verði að stunda hagkvæmar veiðar. „Það er margt sem kemur inn í þá mynd sem enn er ósvarað,“ segir hann. Krabbinn er þó nú þegar kominn á matseðilinn hjá veitingahúsunum Vitanum í Sandgerði og Kopar við Reykjavíkurhöfn. Ásta Guðrún Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Kopars, segir krabbann mjög vinsælan en þar er hann til dæmis hanteraður í kökuform.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira