Vill fá upplýsta umræðu um Evrópumál Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 28. júní 2014 00:01 Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir að þjóðin verði að svara þeirri spurningu hvort hún vilji fara inn í evrusamrunann sem sé augljós og fyrirsjáanlegur. Fréttablaðið/GVA „
Það er rangt sem menn hafa haldið fram að það sé ekki hægt að hafa upplýsta umræðu um Evrópumálin og þá spurningu hvort Ísland eigi að vera aðili að sambandinu án þess að fyrir liggi samningur við ESB,“ segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. Illugi blés nýju lífi í ESB-umræðuna með ræðu sem hann hélt á Hrafnseyri á þjóðhátíðardaginn. Illugi segir að menn séu allt of fastir í að ræða spurninguna hvernig Ísland eigi að aðlaga sig regluverki ESB. „Við höfum ekki svarað því sem samfélag hvort við viljum fara inn í evrusamrunann sem er augljós og fyrirsjáanlegur. Það er verið að auka samruna innan evrusvæðisins meðal annars með því að stefna að meiri samruna ríkisfjármála evruríkjanna,“ segir Illugi og bætir við að Íslendingar verði að svara því hvort þeir vilji fara inn í slíkt samband eða hvort þjóðin telji hagsmunum sínum betur borgið á þann hátt. Þetta þurfi að ræða áður en við förum að ræða hvernig samningur getur litið út. „Við þurfum að svara því hvort við viljum taka þátt í þeirri vegferð sem augljós er,“ segir Illugi.–En hvernig á þjóðin að svara þessari spurningu? „Þjóðir hafa svarað þessari spurningu áður en þær sækja um með því að kjósa flokka í meirihluta á þjóðþing sín sem leggja áherslu á ESB-aðild og sótt um aðild á grundvelli þess. Annar möguleiki er, eins og Sjálfstæðisflokkurinn lagði til 2009, að það fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um málið. Þá vöruðu sjálfstæðismenn við því að það væri farið af stað með umsókn þar sem annar stjórnarflokkurinn var á móti því að sækja um en hinn flokkurinn meðmæltur.“ Enda hafi farið svo að umsóknarferlið stöðvaðist. Enn er ekki ljóst hvað verður um afar umdeilda þingsályktunartillögu Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra um að draga eigi til baka umsókn Íslands að Evrópusambandinu. Illugi kveðst ekki vilja tjá sig um tillöguna eða hugsanleg afdrif hennar, svarar því einungis til að tillagan sé á forræði utanríkisráðherra. Illugi segir að þjóðin eigi annarra kosta völ en að ganga í Evrópusambandið. „Ef við lítum til sögunnar þá hefur okkur vegnað ágætlega þó við séum ekki í ESB. Við höfum EES-samninginn og þar með aðgang að innri markaði sambandsins sem skiptir miklu máli. Nýlega höfum við gert fríverslunarsamning við Kína og áfram er unnið á vettvangi EFTA-ríkjanna við gerð fríverslunarsamninga. Við eigum góð færi á slíkum samningum sem fámenn þjóð sem auðvelt er að semja við. Þegar kemur að utanríkisviðskiptum þá eru okkur allir vegir færir og það er hægt að halda því fram að við eigum ekki minni möguleika utan ESB en innan.“
Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Fleiri fréttir Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Sjá meira