Óvissa um áframhaldandi útsendingar um gervihnött 26. júní 2014 00:01 Óvissa Fjármögnun gervihnattaútsendinga er ekki á bókum RÚV heldur er það menntamálaráðuneytið sem fóstrar verkefnið. fréttablaðið/gva
Áframhald á dreifingu dagskrár RÚV um gervihnött er í uppnámi, en fjárveiting til verkefnisins liggur ekki fyrir. Dreifing útvarps- og sjónvarpsdagskrár til sjómanna, strjálbýlla svæða og þeirra sem nýta útsendingarnar erlendis fellur því niður að óbreyttu um mánaðamótin. Eyjólfur Valdimarsson, yfirmaður tæknimála hjá RÚV, staðfestir að ekkert sé í hendi ennþá um hvort útsendingunum verður fram haldið, en þær falla niður strax í næsta mánuði eftir því sem næst verður komist. Spurður um hversu margir notendur reiði sig á þessa þjónustu segir Eyjólfur það óljóst. „En það er flotinn, sumarhúsaeigendur og jaðarbyggðir sem eru helstu notendurnir,“ segir Eyjólfur og staðfestir að engin önnur tækni sé raunhæf í staðinn sem tryggi útsendingarnar til þeirra þúsunda sem hafa nýtt sér þær. Kostnaðurinn við útsendingarnar mun vera allt að 70 milljónir en það fæst ekki staðfest nákvæmlega. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er hins vegar um árlegt hark að ræða að fjármagna verkefnið, en atvinnuveganefnd Alþingis fundar sérstaklega um málið í dag.Jón GunnarssonTil marks um vandræðin við fjármögnunina hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að RÚV hafi farið þess á leit við LÍÚ að sambandið keypti þessa þjónustu að hluta. Var þar um verulega upphæð að ræða, eða 10 til 15 milljónir króna á ári. LÍÚ vísaði erindinu frá sér með því fororði að málið hlyti að vera á könnu ríkisins og dreifing á efni félli undir lögbundið hlutverk RÚV. Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, segir fundinn kallaðan saman til að skýra málið, en alls óljóst sé hver niðurstaðan verður, enda sé ekki gert ráð fyrir verkefninu á fjárlögum. Til fundarins eru kallaðir fulltrúar RÚV, ráðuneyta og hagsmunaaðila. Spurður hvort lausn geti falist í að færa verkefnið frá ráðuneytinu og aftur til fjarskiptasjóðs segir Gunnar að þar sé ekki fjármagn til að mæta slíku. Verkefnið var fært frá sjóðnum vegna fjárskorts á sínum tíma, er skilningur Gunnars sem játar því að verkefnið sé mikilvægt fyrir allstóran hóp fólks.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira