Beina ekki ferðamönnum í fjöruna á Stokksnesi Brjánn Jónasson skrifar 25. júní 2014 07:00 Ratsjárstöð sem Landhelgisgæslan rekur er á Stokksnesi, og hefur stofnunin gert athugasemdir við gjaldtökuna. Mynd/Runólfur Hauksson
Starfsmenn á gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn í Hornafirði munu hætta að beina fólki í fjöruna á Stokksnesi eftir að landeigandi ákvað að innheimta gjald af ferðamönnum sem vilja skoða fjöruna. „Við höfum vísað ferðamönnum út á Stokksnes, þetta er mjög fallegur staður,“ segir Helga Árnadóttir, starfsmaður Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn. Landsvæðið er ekki hluti af þjóðgarðinum.Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær ætlar landeigandinn í Stokksnesi að rukka ferðamenn sem fara um land hans um 600 krónur. Landeigandinn tilkynnti starfsfólki Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn um gjaldtökuna á laugardag. Helga segist ekki ætla að beina ferðamönnum í fjöruna vegna þessarar gjaldtöku. „Ef fólk spyr okkur getum við ekki annað en upplýst fólk um hver staðan er í dag, en ég mun ekki benda fólki á að fara þangað af fyrra bragði,“ segir Helga. „Mér finnst þetta ekki jákvætt,“ segir Helga. Hún segist reikna með að vinna í málinu með sveitarfélaginu, en nú þurfi að skoða betur hver sé lagalegur réttur landeigenda og réttur þeirra sem vilja fara um landið. Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, segir að þetta sé sérstakur gjörningur. Hann segist ekki hafa kynnt sér málið í þaula, en afstaða bæjarfélagsins verði væntanlega sú að reyna að koma í veg fyrir þessa gjaldtöku.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira