Loforð um göngustíga byggð á sandi Snærós Sindradóttir skrifar 23. júní 2014 07:00 Nýja „stéttin“ við Furulundarhverfið sem stendur við leikskólann. Fréttablaðið/Kolbeinn Konráðsson
Ekki er fært fyrir hjólastóla, barnavagna og fólk sem notast við göngugrindur á nýjum „gangstéttum“ sem lagðar voru í Varmahlíð í Skagafirði fyrr í júnímánuði. Gangstéttirnar eru gerðar úr sandi. Indriði Þór Einarsson, sviðstjóri framkvæmdarsviðs í sveitarfélaginu Skagafirði, segir að fjármagn vanti til að klára verkefnið. „Þetta verður vonandi ekki svona lengi. Þetta varð kostnaðarsamara en við gerðum ráð fyrir. Við þurfum að átta okkur á hvar við stöndum í kostnaði og athuga með fjármagn, hvort við getum ekki sett yfirlag eða eitthvað meira.“ Framkvæmdirnar sem um ræðir eru meðal annars neðan við Menningarhúsið Miðgarð og við leikskólann. „Það voru ekki göngustígar þarna fyrir svo nú er þetta orðið klárt fyrir yfirlag,“ segir Indriði. „Það er hægt að setja malbik á þetta eða hellur eða hvaða klæðningu sem maður vill. Þetta er ekki vinna sem er fyrir bí en stefnan er að reyna að setja eitthvað meira á þetta. Við reynum að gera meira á þessu ári en við verðum að fá samþykki fyrir því. Við erum búin að nýta það fjármagn sem við höfum í þetta verk núna.“ Mikil óánægja ríkir á meðal íbúa Varmahlíðar með frágang göngustíganna. Sandurinn er um það bil tíu sentímetra djúpur og það er ekki auðvelt að ganga í honum. Auk þess fylgir framkvæmdinni mikill sóðaskapur sem eykst í rigningu. Megnið af hinum nýju „gangstéttum“ er til uppfyllingar við kantstein sem hefur staðið einn, án hellulagnar, um árabil. Einnig hefur sandi verið dreift til hliðar við umferðargötu án merkingar. Það þykir íbúum skapa verulega hættu. „Ég veit alveg að þetta er ekki nógu gott. Það verður máluð lína þarna með fram en til þess að gera betri gangstétt þarf að fara í alla götuna,“ segir Indriði. Kolbeinn Konráðsson, íbúi í Varmahlíð, hefur reynt að fá skýr svör um framkvæmdina en án árangurs. „Maðurinn sem ég talaði við á sveitarstjórnarskrifstofunni sagði bara „gefðu þessu nokkra mánuði“. Þetta á að vera svona í sumar. En svo frystir og snjóar, og svo leysir og hvert fer þá sandurinn? Hann rennur beina leið niður brekkurnar þar sem ekki er kantsteinn til að verja hann. Oddviti Framsóknar lofaði því á fundi fyrir kosningar að það kæmu malbikaðar gangstéttir,“ segir Kolbeinn.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira