Meirihlutar tilkynntir í vikunni ingvar haraldsson skrifar 10. júní 2014 07:00 Björn Blöndal, Halldór Auðar Svansson, Dagur B. Eggertsson og Sóley Tómasdóttir vonast til að tilkynna nýjan fjögurra flokka meirihluta í Reykjavík fyrir föstudaginn. vísir/Vilhelm „
Það verða ákvæði um aukið íbúalýðræði og meira gegnsæi í stjórnsýslu“ segir Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata í Reykjavík, um málefnasamning nýs meirihluta Bjartar framtíðar, Vinstri-grænna, Samfylkingar og Pírata í Reykjavík. Oddvitar framboðanna fjögurra gera ráð fyrir að málefnasamningurinn verði undirritaður áður en heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hefst á fimmtudaginn og stefnumál meirihlutans verði kynnt í kjölfarið. Í sjö af tíu stærstu sveitarfélögum landsins stefnir í að Sjálfstæðisflokkurinn verði í meirihluta. Á laugardaginn var nýr meirihluti Sjálfstæðiflokksins og Bjartar framtíðar kynntur í Kópavogi. Ármann Kr. Ólafsson mun halda áfram sem bæjarstjóri. Sömu flokkar stefna að því að tilkynna meirihlutasamstarf í Hafnarfirði í dag. Þar verður starf bæjarstjóra auglýst til umsóknar. Í Fjarðabyggð var áframhaldandi meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins einnig kynnt á laugardaginn. Framhald verður á samstarfi Sjálfstæðisflokks og Vinstri-grænna í Mosfellsbæ. Samstarfið verður formlega kynnt á fulltrúaráðsfundi Sjálfstæðismanna í kvöld. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þó hlotið meirihluta bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ í tveimur síðustu kosningum. Á höfuðstað Norðurlands, Akureyri, stefna Framsóknarflokkurinn, L-listinn og Samfylking einnig á að kynna meirihlutasamning í dag. Gunnar Þórarinsson, oddviti Frjáls afls í Reykjanesbæ, segir meirihlutaviðræður Beinnar leiðar, Samfylkingarinnar og Frjáls afls ganga vel. Gunnar á von á því að málefnasamningur verði kynntur í vikunni. Sjálfstæðisflokkurinn fékk meirihluta bæjarfulltrúa í Garðabæ, Árborg og á Akranesi. Á Akranesi fékk Sjálfstæðisflokkurinn fimm fulltrúa af níu með einungis 41 prósent atkvæða. Ólafur Adolfsson, oddviti Sjálfstæðismanna á Akranesi, gerir ráð fyrir því að fulltrúi Bjartar framtíðar muni bætast við meirihluta Sjálfstæðisflokksins á næstu dögum. Í Garðabæ verður Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta líkt og síðustu áratugi. Flokkurinn fékk sjö bæjarfulltrúa af ellefu. Sjálfstæðisflokksins í Árborg hlaut 51 prósent atkvæða og fimm bæjarfulltrúa af níu.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira