Meirihlutar að myndast á höfuðborgarsvæðinu Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 5. júní 2014 08:00 Ef þær meirihlutaviðræður sem eru nú í gangi á höfuðborgarsvæðinu ganga eftir mun Sjálfstæðisflokkurinn vera í meirihluta í öllum sveitarfélögum nema í Reykjavík. vísir/sigurjón
Reykjavík er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki í meirihlutaviðræðum en oddvitar Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata hafa fundað síðustu daga og skoða nú kosningaloforð og málefnaáherslur flokkanna. Í Hafnarfirði hafa formlegar viðræður bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar hafist en ekki tókst að mynda samstarf allra flokka eins og Björt framtíð hafði boðað með hugmynd sinni um þjóðstjórn, bæði fyrir og eftir kosningar. „Við höfum rætt í þrjá daga við oddvita allra flokka og eftir þá fundi kom í ljós að það gengi ekki. Við komum aldrei öllum hópnum saman til að ræða málið,“ segir Guðlaug Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar, en flokkurinn er í lykilstöðu til að mynda meirihluta. Guðlaug segir að hún hafi mætt því viðmóti frá öllum flokkum að mikilvægt væri að hafa minnihluta og meirihluta og að hugmynd um þjóðstjórn væri fjarstæðukennd. Hún segir viðræður við Sjálfstæðisflokk ganga vel en ekki hafi enn verið rætt hvort hún eða Rósa Guðbjartsdóttir fái borgarstjórastólinn.Guðlaug Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði, segir ekki hafa tekist að kalla hópinn saman og mynda þjóðstjórn.Oddvitar Vinstri grænna og Samfylkingar í Hafnarfirði eru ekki sammála þessari greiningu Guðlaugar. Þau segjast bæði hafa verið tilbúin að ræða samstarf allra flokka og því hafi hugmyndin alls ekki strandað hjá þeim. „Það hafa aðeins farið fram óformlegir fundir og aldrei með öllum flokkum. Þau í Bjartri framtíð hafa greinilega ekki treyst sér til að reyna þetta til þrautar,“ segir Guðrún Ágústa Guðlaugsdóttir, oddviti Vinstri grænna og fráfarandi bæjarstjóri. Gunnar Axel Axelsson, oddviti Samfylkingar, tekur í sama streng. „Okkur er sagt að þetta hafi steytt á skeri,“ segir hann. „En hvaða sker það er, það er náttúrulega Sjálfstæðisflokkurinn.“ Í Garðabæ og á Seltjarnarnesi myndar Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta og í Kópavogi ræða Sjálfstæðisflokkur og Björt framtíð meirihlutasamstarf. Í Mosfellsbæ gæti Sjálfstæðisflokkurinn myndað hreinan meirihluta en er þó í viðræðum við Vinstri græn um samstarf. Flokkarnir hafa unnið saman þar í bæ síðastliðin átta ár og er hugur í mönnum að halda því áfram.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira