Hægt að flytja tréð en árangur óviss Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 4. júní 2014 10:00 Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri segir að á Austurvelli séu nokkrir gráelrar frá því um 1960. Fréttablaðið/Anton
Verði niðurstaðan sú að silfurreynirinn á Grettisgötu 17, sem talinn er vera frá árinu 1908, verði að víkja vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingar milli Laugavegs og Grettisgötu verður skoðað hvort hægt verði að finna honum nýjan stað, að sögn Þórólfs Jónssonar garðyrkjustjóra. „Það er tæknilega mögulegt að flytja tréð. Svona stór tré og jafnvel stærri tré hafa verið flutt en árangurinn er óviss. Fyrst á eftir verður tréð druslulegt en það gæti hjarnað við. Svo gæti það líka gerst að það veslaðist upp á nokkrum árum,“ tekur Þórólfur fram. Að sögn garðyrkjustjórans má reikna með að rótarkerfi silfurreynisins við Grettisgötu sé jafnstórt krónu trésins. „Ef vel ætti að vera þyrfti að ná jafnstóru rótarkerfi og krónan teiknar sig. Við vitum hins vegar ekki hvert ræturnar hafa farið. Sennilega eru þær í framlóðinni eða jafnvel undir húsinu sem það stendur við hliðina á. Langbest væri þó að tréð fengi að standa þar sem það er. Þar mun því örugglega farnast best.“ Þórólfur segir borgaryfirvöld og byggjendur hótels á horni Aðalstrætis og Túngötu hafa lagt mikið á sig til að vernda gamalt tré inni á lóð hótelsins. „Þar er álmur frá 1902 á bak við hótelið sem sést þegar gengið er upp Túngötu. Það tókst ágætlega að halda því tré þótt þrengt hafi verið að því.“ Flottasta tréð sem borgin á er silfurreynirinn í Fógetagarðinum við Aðalstræti, að því er Þórólfur greinir frá. „Silfurreynirinn þar er líklega frá 1886. Þar eru líka flottir, gamlir hlynir.“ Hlynurinn á horni Vonarstrætis og Suðurgötu er frá 1917. „Við eigum hann ekki frekar en álminn í Aðalstræti. Þessi hlynur er á lóð Happdrættis Háskóla Íslands en í hugum margra er hann aðaltréð í borginni,“ segir Þórólfur. Elstu trén í Hólavallagarði, kirkjugarðinum við Suðurgötu, eru frá því upp úr aldamótunum 1900. Almenn gróðursetning varð þar ekki fyrr en á árunum milli heimsstyrjalda, að því er segir á vef Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Þórólfur bendir á að hægt sé að reikna aldur trjáa út frá aldri byggðarinnar. „Ef trén eru stór og gömul eru þau frá því skömmu eftir að húsin voru byggð. Margir dást að gömlum trjám sem eru víða á einkalóðum við Laufásveg. Í Norðurmýri eru líka gömul, flott tré.“Silfurreynirinn gamli við Grettisgötuna.Vísir/Gunnar Atli
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Fleiri fréttir Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Sjá meira