Ný flóðlýsing án útboðs: ÍTR vill að borgin greiði 50 milljónir í verkið Sveinn Arnarsson skrifar 4. júní 2014 08:45 Framkvæmdir eru hafnar við uppsetningu nýrrar flóðlýsingar á Laugardalsvelli. frettabladid/Pjetur
Framkvæmdir við endurnýjun flóðlýsingar á Laugardalsvelli fóru ekki í útboð og keppinautum Ó. Johnson & Kaaber, þess sem fékk verkið, var ekki gert kleift að gera tilboð í framkvæmdina. Framkvæmdirnar eru á vegum KSÍ og er talið að heildarkostnaður við verkið nemi rúmlega 70 milljónum króna. Samkvæmt fyrirliggjandi samningsdrögum mun Reykjavíkurborg greiða um 50 milljónir króna á þremur árum vegna framkvæmdanna og eignast síðan ljósin. Verkið var ekki boðið út heldur gerður samningur við Ó. Johnson & Kaaber ehf. um kaupin. Ýmsir af keppinautum Ó. Johnson & Kaaber sem Fréttablaðið hefur rætt við eru afar ósáttir við vinnubrögð KSÍ og Reykjavíkurborgar og telja rétt að bjóða slík verkefni út. Arnar Þór Hafþórsson, sölu- og markaðsstjóri Jóhanns Ólafssonar & Co, keppinautar Ó. Johnson & Kaaber, segist undrast það verklag að enginn annar hafi fengið að bjóða í verkið. „Okkar fyrirtæki er með umboð fyrir Siteco, mjög vandaða vöru sem er notuð á um 90 prósent allra knattspyrnuvalla í Noregi til að mynda, við aðstæður sem eru afar líkar þeim sem gerast á Íslandi. Ég fullyrði það að við erum bæði samkeppnishæfir í verði og gæðum og gætum auðveldlega unnið verkið fyrir haustið,“ segir Arnar Þór. Laugardalsvöllur er eign Reykjavíkurborgar en Knattspyrnusamband Íslands hefur verið með þjónustusamning við borgina um reksturinn. Sá samningur er útrunninn. Á næsta fundi borgarráðs liggja fyrir tveir samningar um völlinn, annars vegar nýr þjónustusamningur um rekstur svæðisins og annar um flóðlýsinguna.Geir Þorsteinsson Formaður KSÍ.frettabladid/valliGeir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir í samtali við Fréttablaðið að sérfræðingur frá UEFA hafi komið til landsins til að fara yfir ýmis mál vegna undankeppni Evrópumóts landsliða sem hefst í haust. „Gerð var athugasemd við flóðlýsingu Laugardalsvallar, hún væri ekki nægilega góð og þá þurftum við að vinna hlutina hratt. Við höfðum ekki tíma til að fara í langt og strangt útboðsferli. Þessi mál þurfti að ákveða hratt og vel.“ Reykjafell, Rönning og Ískraft eru einnig keppinautar á markaði fyrir flóðlýsingu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fengu þessi fyrirtæki ekki tækifæri til að gera tilboð í verkið. Leitað var svara hjá Reykjavíkurborg hvort ekki væri eðlilegt að viðhafa útboð við svo viðamikil kaup á kostnað skattgreiðenda. Eva Einarsdóttir, formaður ÍTR, vildi ekki tjá sig um málið fyrr en eftir borgarráðsfundinn á fimmtudag.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Sjá meira