Sjálfstæðisflokkur ræðir við Bjarta framtíð í Kópavogi Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 2. júní 2014 10:00 vísir/pjetur
Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi hefur bæði haft samband við Bjarta framtíð og Framsóknarflokkinn um mögulegt meirihlutasamstarf í bænum. Meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í Kópavogi hélt velli í kosningunum en innan Sjálfstæðisflokksins vilja menn skoða möguleika á samstarfi við aðra flokka en Framsóknarflokkinn. Báðir flokkarnir bættu við sig fylgi í Kópavogi. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig manni en fylgisaukning Framsóknarflokksins dugði þó ekki fyrir öðrum bæjarfulltrúa. Ef þessir flokkar mynda meirihluta eru þeir með sex af ellefu bæjarfulltrúum í bæjarstjórn. Birkir Jón Jónsson, Framsóknarflokki, ítrekaði þá afstöðu sína í samtali við Fréttablaðið í gær að hann væri tilbúinn í áframhaldandi samstarf með Sjálfstæðisflokki.Björt framtíð fékk tvo bæjarfulltrúa kjörna í Kópavogi og ef flokkurinn myndaði meirihluta með Sjálfstæðisflokki ættu þessir flokkar sjö bæjarfulltrúa af ellefu. Theodóra S. Þorsteinsdóttir leiddi lista Bjartrar framtíðar. Hún segir að margir í Kópavogi hafi verið orðnir þreyttir á þeirri pólitík sem hafi verið rekin í bænum undanfarin ár. „Við boðuðum meiri sátt og meira samstarf og breytta orðræðu í bæjarstjórn. Þetta fékk hljómgrunn meðal kjósenda,“ segir Theodóra og bætir við að flokkurinn hafi verið heiðarlegur og einlægur í kosningabaráttunni. Þriðji möguleikinn á meirihlutasamstarfi í Kópvogi er Samfylking, Framsóknarflokkur, Vinstri græn og Björt framtíð hann væri með sex af ellefu í bæjarstjórn. Afar ólíklegt þykir þó að slíkur meirihluti verði myndaður. Samfylkingin tapaði manni og er nú með tvo í bæjarstjórn. „Niðurstaðan er vonbrigði. Björt framtíð tók töluvert mikið fylgi frá okkur. Undir lok kosningabaráttunnar fóru Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn í mikil yfirboð auk þess sem þeir auglýstu mikið,“ segir Pétur Hrafn Sigurðsson, en hann leiddi lista Samfylkingarinnar. Næst besti flokkurinn þurrkaðist nánast út og tapaði sínum fulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í meirihluta í 24 ár utan 16 mánaða tímabils á síðast kjörtímabili en þá mynduðu Samfylking, Næst besti flokkurinn, listi Kópavogsbúa og Vinstri græn meirihluta. Sá meirihluti sprakk með hvelli.
Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Fleiri fréttir Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Sjá meira