Hafa gert atlögu að samstöðu á vinnumarkaði Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 31. maí 2014 12:30 Samtök atvinnulífsins segja að tekist hafi að koma í veg fyrir víxlhækkun launa og verðbólgu. Vísir/Vilhelm „
Það hefur ekki reynst næg samstaða um launalínuna sem var mótuð í desembersamningunum. Því er ekki að neita að ýmis stéttarfélög, þá sérstaklega á opinbera markaðnum, hafa lagt til atlögu við þá línu sem mörkuð var,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann tiltekur sérstaklega samninga BHM við sveitarfélögin og samninga sem gerðir hafa verið við grunn- og framhaldsskólakennara. Alþýðusambands Íslands heldur því fram að tilraun sem gerð var fyrir áramót með kjarasamningum ASÍ við Samtök atvinnulífsins hafi mistekist. Tilgangurinn hafi verið að skapa breiða samstöðu sem ætlað hafi verið að stuðla að stöðugleika í gengi og verðlagi. Samið hafi verið um 2,8 prósenta hækkun auk sérstakra hækkana á lægstu laun. Stórir hópar hafi komið og samið um allt annað og meira en talið var að væri til skiptanna í kringum áramótin. Til sögunnar nefnir ASÍ kennarasamningana og samninga flugmanna við Icelandair. Þorsteinn segir rangt að tilraunin hafi mistekist. „Ef við horfum á stóru myndina þá var verkefnið að ná breytingum á þeim vítahring sem við höfum verið föst í, það er víxlhækkunum launa og verðbólgu. Það hefur tekist,“ segir Þorsteinn og bendir á að verðbólga hafi verið undir 2,5 prósenta verðbólguviðmiði Seðlabanka Íslands undanfarna mánuði. „Það eru vissulega undantekningar þar sem ákveðnir hópar hafa samið um meira en var gert í desember. Það grefur undan samstöðunni,“ segir Þorsteinn og bætir við að verkefnið í næstu lotu sé að finna sameiginlega lausn sem raskar ekki grunnforsendum kjarasamninga og viðheldur stöðugleika. Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, neitar því að tilraunin hafi mistekist. Hann segir að það hafi myndast tækifæri til að semja við grunnskólakennara eftir að framhaldsskólakennarar sömdu við ríkið. „Það var búið að vinna lengi að þeim kerfisbreytingum sem samdist um og við vissum allan tímann að þær myndu þýða ákveðnar launahækkanir fyrir kennara,“ segir Karl og segir að aðrir samningar, sem sveitarfélögin hafa gert, séu í takt við samninga ASÍ við SA. „Aðrir samningar en kennarasamningarnir eru í sama anda og ASÍ-samningarnir. Menn verða að hafa í huga þegar þeir eru að meta samninga hvað þeir eru gerðir til langs tíma.“
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira