Hluti barna látinn borga heim með sér Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 29. maí 2014 10:00 Margrét Einarsdóttir kemst að þeirri niðurstöðu í doktorsritgerð sinni að togsteita ríki milli efnahagslegrar og líkamlegrar velferðar ungmenna þegar kemur að atvinnuþátttöku. Vísir/Danni „
Peningurinn, var svarið sem ég fékk þegar ég spurði börn á aldrinum 13 til 17 ára hvers vegna þau væru að vinna. Þau tala hins vegar ekki um að það sé gaman í vinnu,“ segir Margrét Einarsdóttir, sem í dag ver doktorsritgerð sína, Launavinna barna og unglinga, við Háskóla Íslands. Ritgerðin er unnin úr svörum um 1.000 barna sem var safnað á árunum 2007 til 2008. Í ritgerðinni kemst Margrét meðal annars að þeirri niðurstöðu að ákveðin togstreita ríki á milli efnahagslegrar og líkamlegrar velferðar ungmennanna þegar kemur að atvinnuþátttöku þeirra. Ungmennin leggja áherslu á að þau vilji vinna sér inn peninga, tekjurnar færi þau í átt til sjálfstæðis og ábyrgðar og í sumum tilfellum þurfi þau á tekjunum að halda til að standa straum af eigin framfærslu. Margrét segir að það séu nokkuð sterk tengsl á milli menntunar foreldra og þess hversu gömul börnin eru þegar þau fara að vinna. „Börn sem eiga háskólamenntaða foreldra eru eldri þegar þau fara að vinna á sumrin og þau vinna styttri vinnuviku. Þau eru jafnframt ólíklegri til að vinna með skóla,“ segir hún. Margrét segir að börn og unglingar á þessum aldri vinni af fjárhagslegum ástæðum, það geti svo tengst öðrum þáttum, til dæmis að þau vilji bera ábyrgð á sjálfum sér að hluta. Eldri börnin greiði oft og tíðum sjálf innritunargjöld í framhaldsskóla og borgi fyrir eigin bækur. Sum barnanna keyptu mat til heimilisins fyrir það fé sem þau unnu sér inn. „Það bendir til þess að sumar fjölskyldur þurfi á launum barnanna að halda til að halda sér uppi,“ segir Margrét. Þá segir hún að á milli eitt og tvö prósent barnanna, eða 20 til 30, hafi sagt að þau þyrftu að borga með sér heim. Annars segir Margrét að sér sýnist að frá því fyrir aldamót og fram að hruni hafi dregið úr vinnu barna og unglinga á sumrin. Hins vegar hafi vinna barna og unglinga með skóla aukist.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira