Innlent

Fólk pantar fölsuð lyf á netinu

Erla björg Gunnarsdóttir skrifar
Einkaleyfastofan verður með algengar falsaðar vörur til sýnis á nýsköpunartorgi HR í dag. Þar má sjá snyrtivörur, lyf, úr og ýmsan klæðnað.
Einkaleyfastofan verður með algengar falsaðar vörur til sýnis á nýsköpunartorgi HR í dag. Þar má sjá snyrtivörur, lyf, úr og ýmsan klæðnað. vísir/valli
Í ljósi mikilla gróðamöguleika og hversu einfalt er í dag að framleiða töflur og umbúðir, hefur framleiðsla á fölsuðum lyfjum aukist mikið.

Ísland fer ekki varhluta af þeirri þróun því reglulega finnast fölsuð lyf í tolleftirliti. Lyfin hafa þá verið pöntuð af netinu.

Hlutverk Einkaleyfastofunnar er meðal annars að vekja athygli almennings á ólögmæti og skaðsemi falsaðra lyfja og vara.

„Yfirleitt er innfluttur falsaðar varningur frá Kína og ef grunur vaknar um fölsun eru sendingarnar sendar í efnagreiningu,“ segir Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofunnar. 

„Í flestum tilfellum eru þetta stinningarlyf sem eru annaðhvort seld á svörtum markaði eða fólk pantar sér á netinu til einkanota.“ 

Talið er að stór hluti þeirra lyfja sem seld eru í gegnum netið séu fölsuð en þau geta verið stórhættuleg. Til að blekkja kaupandann hvað varðar útlit og áhrif er í sumum tilfellum notuð efni eins og götumálning, lakk, amfetamín og morfín. Fyrir utan stinningarlyf er algengt að grenningarlyf, fúkkalyf og lyf gegn kólesteróli séu fölsuð. 

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofunnar, segir að með því að kaupa falsaða vöru sé í flestum tilfellum verið að styðja við glæpastarfsemivísir/valli
Viðskipti með falsaðan varning er sú ólöglega starfsemi sem hefur vaxið hvað mest í heiminum á síðustu árum. 



„Hér á Íslandi eru það helst húsgögnin. Þá er verið að flytja inn eftirlíkingar af húsgögnum sem er brot gegn skráðu vörumerki, skráðri hönnun eða höfundarrétti. Til að mynda var eftirlíking af hinum vinsæla Triptrap-stól flutt inn til landsins á sínum tíma,“ segir Borghildur. 

Hún bætir við að margir spyrji sig af hverju það sé ekki í lagi að kaupa falsaðar vörur á helmingi lægra verði. 

„Þetta er ólögmætur varningur og yfirleitt fer ágóðinn til að fjármagna glæpastarfsemi, í flestum tilfellum fíkniefnastarfsemi. Þannig að með því að kaupa falsaða vöru ertu óbeint að styðja við slíkt,“ segir Borghildur Erlingsdóttir. 

Einkaleyfastofan er með bás á Nýsköpunartorgi HR í dag til að vekja athygli nýsköpunarfyrirtækja á mikilvægi hugverkaréttinda og einkaleyfaumsókna auk þess að hafa til sýnis algengar falsanir á hinum ýmsu vörum. 

Eftirlíking af MAC penslum. Algengt er að snyrtivörur séu falsaðar.vísir/valli
Algengar falsaðar vörur á Íslandi: 

Lyf, viagra og megrunartöflur

Rolex-úr

Svanurinn (stóll)

Snyrtivörur, t.d. maskarar

Ýmis klæðnaður, t.d. íþróttatreyjur

Ilmvötn

Húsgögn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×