Innlent

Aðstandendur Osazee mótmæla

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Izekor var greinilega létt eftir að hafa verið sleppt úr varðhaldi í gær. Fréttablaðið/Daníel
Izekor var greinilega létt eftir að hafa verið sleppt úr varðhaldi í gær. Fréttablaðið/Daníel
Izekor Osazee, flóttamaður frá Nígeríu, var handtekin í gærmorgun þegar hún kom á lögreglustöð til að sinna tilkynningarskyldu.

Osazee var sleppt úr haldi eftir að hafa setið í fangaklefa í rúmlega sjö klukkustundir, en brottvísun hennar úr landi hefur verið frestað.

Osazee giftist Gísla Jóhanni Grétarssyni í síðasta mánuði. Í síðustu viku var henni tilkynnt að vísa ætti henni úr landi og bar henni að tilkynna sig til lögreglu daglega fram að því.

„Þetta er eiginkona mín. Fjölskylda mín. Ég mun standa með henni og verði hún send úr landi mun ég líka fara úr landi,“ segir Gísli.

Helga Vala Helgadóttir, lögmaður Osazee, segir að undanþágu sé hægt að fá frá meginreglu um að útlendingi beri að sækja um dvalarleyfi áður en hann kemur til lands.

„Þessari undanþágu á að beita þegar um er að ræða maka annars vegar og hins vegar þegar um er að ræða einhvern með viðkvæmar aðstæður. Í þessu tilfelli á hvort tveggja við.“

Helga Vala segist bjartsýn á framhaldið miðað við viðbrögð í dag. „Ég hef trú á því að það eigi að laga þessa vitleysu,“ segir Helga.

„Næstu skref eru hjá stjórnvöldum. Þau eru að skoða málið og móta stefnu varðandi hvernig á að taka á því þegar makar eða aðrir nánir aðstandendur sækja um dvalarleyfi.“

Aðstandendur Osazee hafa stofnað vefsíðu þar sem boðað er til mótmæla í dag við lögreglustöðina á Hverfisgötu.

„Það er ólíðandi og óþolandi að saklaust fólk sé rifið frá fjölskyldum sínum hér á landi fyrir það eitt að vera útlenskt án leyfis,“ segir á síðunni.


Tengdar fréttir

Izekor Osazee laus úr haldi

Aðstandendur Izekor hafa boðað til mótmæla á morgun klukkan tólf við lögreglustöðina á Hverfisgötu til stuðnings hennar.

Ekki til skrifleg stefnumótun í útlendingamálum

Izekor Osazee, sem hand­tek­in var í morg­un og til­kynnt að henni yrði vísað úr landi í fyrra­málið, var sleppt úr haldi lögreglu síðdegis í dag. Forstjóri Útlendingastofnunar segir að ekki sé til skrifleg stefnumótun í útlendingamálum hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×