Fleiri HIV-smitaðir með risvandamál Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 20. nóvember 2014 07:00 Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland segir betur horfa með yngra fólkið.
Níu af þrettán HIV-smituðum körlum eða 69,2 prósent glíma við risvandamál af einhverju tagi. Þar af eru sjö, eða um 54 prósent, með alvarleg risvandamál. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Sigríðar Maríu Kristinsdóttur læknanema á kynheilsu HIV-smitaðra karla. Sendur var spurningalista til 95 HIV-smitaðra karlmanna og bárust svör frá 26. Ekki reyndist unnt að reikna stigafjölda úr krossaspurningum hjá helmingi svarenda, að því er kemur fram í grein Sigríðar í ritinu Rauða borðanum sem er blað samtakanna HIV Ísland. Sigríður getur þess í greininni að tíðnitölurnar hér séu ekki ólíkar tíðnitölum sem birst hafa erlendis. Ekki sé á hreinu hvað valdi hærri tíðni. Bent er á að í íslenskri rannsókn frá 2006, þar sem karlmenn voru valdir af handahófi úr samfélaginu, hafi algengi ristruflana hjá 45 til 75 ára verið 35,5 prósent. Hæst hafi hlutfallið verið hjá 65 til 75 ára eða rúmlega 60 prósent. Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland, segir almennt heilsufar HIV-smitaðra vera að færast í betra horf. „Eldri lyfin voru sterkari en þau sem er verið að gefa núna og þau höfðu ýmsar aukaverkanir í för með sér. Ýmis heilsufarsvandamál tengdust töku þeirra og náttúrlega því að vera með veiruna í líkamanum. Erfðaþættir spila líka inn í. Það horfir betur með yngra fólkið og þá sem ekki eru búnir að vera lengi með sjúkdóminn.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira