80 prósent kvenna upplifa sig óöruggar í miðborginni Stefán Árni Pálsson skrifar 20. nóvember 2014 10:02 UN Women á Íslandi ýtir úr vör herferð til að skapa konum og börnum öruggt líf. vísir/hari
Átta af hverjum tíu íslenskum konum upplifa sig óöruggar í miðborg Reykjavíkur að næturlagi en þetta kemur fram í tilkynningu frá UN Women á Ísland. Þar segir að nauðsynlegt sé að auka öryggi kvenna út um allan heim og Reykjavík sé enginn undantekning. UN Women á Íslandi ýtir úr vör herferð til að skapa konum og börnum öruggt líf án ótta við ofbeldi. „Ofbeldi gegn konum og stúlkum er heimsfaraldur. Óhætt er að segja að það ríki neyðarástand í stórborgum víðsvegar um heiminn þar sem konur og stúlkur eiga erfitt með að ferðast til og frá vinnu eða sækja skóla vegna ótta við ofbeldi og áreitni í almenningsrýmum. Meira að segja í öruggustu borgum heims eins og Reykjavík verða konur fyrir ofbeldi af ýmsu tagi,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women.Öruggar borgir (e. Safe Cities Global Initiative) er alþjóðlegt verkefni UN Women. Borgaryfirvöld 18 landa hafa heitið því að gera borgina sína öruggari fyrir alla. „Markmið Öruggra borga er að skapa konum, unglingum og börnum öruggt líf í borgum án ótta við ofbeldi og er það unnið í samstarfi við borgaryfirvöld og frjáls félagasamtök á hverjum stað,“ segir hún. „Sem dæmi um ástandið má nefna að 95 prósent kvenna í Nýju Delí á Indlandi finnst þær ekki öruggar á götum úti.“ Reykjavíkurborg lætur sitt ekki eftir liggja og skrifar í næstu viku undir samning um að höfuðborgin verði örugg borg. Síminn hefur í samstarfi við samtökin fengið framleiðslufyrirtækið Tjarnargötuna til að framleiða þrjú gagnvirk myndbönd sem sýna íslenskan veruleika kvenna sem verða fyrir áreitni í ólíkum aðstæðum. Áhorfendur skyggnast inn í heim bæði þolenda kynferðisofbeldis og gerenda slíks ofbeldis með því að tengja saman tölvu og síma. „Ofbeldi gegn konum er alþjóðlegt vandamál og viðgengst í öllum samfélögum. Með þessu átaki tökum við hjá Símanum höndum saman við UN Women við að vekja athygli á því að þetta er samfélagslegt mein hér á Íslandi, ekki síður en annars staðar. Afraksturinn rennur svo þangað sem hans er mest þörf,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans. Inga Dóra segir það von UN Women að myndböndin veki fólk til vitundnar um að ofbeldi þrífst í hverri einustu borg í heiminum, líka okkar. „Samtökin hvetja landsmenn til þess að senda sms-ið oruggborg í 1900 og leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir betri heimi fyrir alla.“ Rannsóknir sýna að 99,3 prósent kvenna og stúlkna á þéttbýlissvæðum í Egyptalandi hafa upplifað kynferðislega áreitni og um helmingur þeirra verður fyrir áreitni daglega. 95 prósent kvenna í Nýju Delí á Indlandi finnst þær ekki öruggar á götum úti. 73 prósent þessara kvenna upplifa ekki einu sinni öryggi í sínu nánasta umhverfi. Þrír af hverjum fjórum karlmönnum í sömu rannsókn telja að konur beri sjálfar sök á að verða fyrir ofbeldi með því að vera í tilteknum klæðnaði. Tveir af hverjum fimm karlmönnum í Nýju Delí telja að konur sem eru á ferli eftir myrkur beri sjálfar ábyrgð á því að vera áreittar. Um 77 prósent íslenskra kvenna upplifa sig óöruggar í miðborg Reykjavíkur að næturlagi.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira