Hanna Birna setti 25 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna Stefán Árni Pálsson skrifar 20. nóvember 2014 12:25 Hanna Birna Kristjánsdóttir hélt ræðu í Laugarlækjarskóla. mynd/aðsend
25 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna var fagnað í Laugalækjarskóla í morgun. Dagurinn hófst á því að ráðherrar, þingmenn og nemendur Laugalækjarskóla borðuðu morgunhafragrautinn saman en að því loknu setti innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hátíðina og lýsti afmælisár sáttmálans formlega hafið. Sérstök afmælisnefnd hefur undirbúið viðburði sem muna dreifast yfir árið. Þar má nefna gerð sjónvarpsmyndar, málþing og fleira. Framkvæmdastjórar Barnaheilla, UNICEF á Íslandi, innanríkisráðherra og umboðsmaður barna fóru því næst fyrir fjöldasöng þar sem afmælissöngur Barnasáttmálans var sunginn við undirleik Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra. Að því loknu fóru framkvæmdastjórar UNICEF og Barnaheilla ásamt umboðsmanni barna og innanríkisráðherra fyrir afmælissöng Barnasáttmálans en Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra lék undir á píanó. Loks undirritaði sérstakur þverpólitískur þingmannahópur yfirlýsingu um að gerast talsmenn barna á Alþingi.Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, tók lagið.,,Við vildum setja afmælisathöfnina inn í umhverfi barnanna, í anda Barnasáttmálans og leggja þannig áherslu á að samfélagið aðlagi sig börnum og þeirra umhverfi, en gerum ekki ráð fyrir að börnin séu sett í umhverfi hinna fullorðnu,” segir Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi sem hefur ásamt UNICEF og umboðsmanni barna skipulagt afmælishátíð Barnasáttmálans. Á afmælishátíðinni undirritaði sérstakur hópur þingmanna yfirlýsingu um að gerast „Talsmenn barna á Alþingi“. Hópinn skipa þingmenn úr öllum flokkum sem hafa setið námskeið á vegum UNICEF, Barnaheilla og Umboðsmanns barna um Barnasáttmálann og notkun hans sem hagnýts verkfæris við ákvarðanatöku og stefnumótun. Þingmannahópinn skipa þau Elín Hirst (D), Karl Garðarsson (B), Valgerður Bjarnadóttir (S), Páll Valur Björnsson (A), Birgitta Jónsdóttir (Þ) og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (V). Við undirritunina settu þingmennirnir upp sérstök „barnagleraugu“ til að muna eftir að líta á málin frá sjónarhorni barna. „Ég er stolt af því að tilheyra þessum hópi og mun framvegis setja upp barnagleraugun við úrvinnslu mála sem snerta börn og velferð þeirra,“ sagði Elín Hirst. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata tók í sama streng og beindi orðum sínum til barnanna á staðnum. „Þegar við mótum lög munum við hafa það í huga að þau hafa áhrif á ykkur, öll lög hafa áhrif á ykkur.“ Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi sagði undirritunina afar gleðilegan áfanga. „Börn eiga sér oft fáa málsvara. Því er einstaklega ánægjulegt að sáttmálanum sé gert hátt undir höfði á þessum degi og að þverpólitískur hópur þingmanna heiti börnum og réttindum þeirra stuðningi sem mun hafa áhrif um allt samfélagið,“ sagði Bergsteinn. Barnasáttmálinn er útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims og er afmæli hans fagnað um allan heim á þessum degi. Þó Ísland teljist fyrirmynd innan alþjóðasamfélagsins með tilliti til lífsskilyrða og réttinda barna, verðum við að vera meðvituð um þá ábyrgð sem felst í þessu hlutverki. Okkur miðar vel, en betur má ef duga skal – stuðla þarf markvisst að innleiðingu réttinda barna ef tryggja á að sýn Barnasáttmálans verði að veruleika fyrir öll börn. 20. febrúar 2013 samþykkti Alþingi Íslendinga einróma að lögfesta Barnasáttmálann. Sáttmálinn hefur því lagalegt gildi hér á landi. Barnasáttmálinn boðar byltingakennda sýn á stöðu barna. Sáttmálinn viðurkennir að börn séu viðkvæmur hópur sem tryggja þurfi sérstaka vernd og umönnun. Samhliða því gengur hann út frá því að börn séu fullgildir þátttakendur í samfélaginu og búi yfir þekkingu og reynslu sem sé verðmæt fyrir samfélagið.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Sjá meira