Ekki sátt um kvótafrumvarp frá sjávarútvegsráðherra Sveinn Arnarsson skrifar 20. nóvember 2014 11:00 Afli Ólík sjónarmið eru á Alþingi um efni nýs frumvarps sjávarútvegsráðherra. Fréttablaðið/stefán
Festa á nýtingarrétt útgerðanna á fiskveiðiauðlindinni til rúmlega tuttugu ára í frumvarpi sjávarútvegsráðherra að nýju fiskveiðistjórnunarkerfi. Horfið verður frá því að aflaheimildum verði úthlutað árlega og tekið upp leigusamningakerfi milli útgerða og ríkisins. Mun ráðherra, samkvæmt frumvarpinu, halda eftir 5,3 prósentum af heildarafla til félagslegrar úthlutunar, líkt og verið hefur. Frumvarp þetta er unnið upp úr hugmyndum sáttanefndar um framtíðarskipan sjávarútvegsins. Frumvarpið á að gera skýra grein fyrir því að ríkið eigi veiðiréttinn og leigi hann út til útgerðanna. Markmið lagabreytingarinnar er að styrkja rekstrargrundvöll sjávarútvegsfyrirtækja þannig að þau geti fjárfest í greininni og skilað ríflegum arði til eiganda auðlindarinnar, þjóðarinnar. Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokki, segir þau frumvarpsdrög sem nú liggja fyrir þingflokkunum, vera á þá leið að breið sátt ætti að geta myndast um frumvarpið. „Það er margt mjög gott í frumvarpsdrögunum og ég er mjög ánægður með hvernig þetta lítur út. Þetta er að miklu leyti byggt á störfum sáttanefndarinnar. Auðvitað eigum við eftir að rýna betur í einstaka liði en á heildina litið lítur þetta vel út og ég tel að hægt sé að mynda almenna sátt um málið á Alþingi,“ segir Ásmundur. Páll Jóhann Pálsson, Framsóknarflokki, tekur í sama streng. „Þetta er ákveðin sáttaleið sem flestir hafa trú á að sé til þess fallin að skapa sátt um kerfið bæði á þingi og í samfélaginu. Menn eru að gera sér vonir um að þetta komi til móts við flest sjónarmið. Í þessu frumvarpi fá útgerðirnar tryggingu fyrir að geta nýtt auðlindina svo hægt sé að skipuleggja reksturinn til einhvers tíma.“ Sú breiða sátt sem Páll Jóhann og Ásmundur telja geta orðið um frumvarpið, verður þó líklega torsótt. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, er ekki jafn kátur með frumvarpið. Hann gat ekki tjáð sig um einstakar greinar í frumvarpinu því hann væri bundinn trúnaði þar til það kæmi fyrir þingið. „Ég get hins vegar sagt að það sem við höfum verið að sjá í fréttum, þessir gríðarlega löngu samningar með lágmarksveiðigjaldi og lítilli nýliðun í greininni, er ekki í takt við áherslur Samfylkingarinnar og ekki það sem landsmenn vilja sjá og hefur margsinnis komið fram í viðhorfskönnunum,“ segir Árni Páll. Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vinstri grænum, er sama sinnis og Árni Páll að því leyti að líklega verði ekki mikið um sættir um þetta frumvarp. „Ég gef lítið fyrir það að þetta eigi að heita sáttafrumvarpið mikla. Ég get hins vegar trúað því að svokallaðir hagsmunaaðilar, útgerðin og SFS, verði mjög sátt við frumvarpið. Að mínu mati sýnist mér búið að negla veiðiréttinn til framtíðar í höndum þeirra og engin gulrót í átt að opnu kerfi. Það verður lítil sátt um þetta því hér er verið að binda hendur komandi ríkisstjórna til langrar framtíðar,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira