Fjölga nýjum félagslegum leiguíbúðum um 500 Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2014 13:55 Tillagan byggir á þarfagreiningu velferðarsviðs með vísan til núverandi þarfar, biðlista og spám um þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði til framtíðar. Vísir/Arnþór
Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að heimila Félagsbústöðum að fjölga félagslegum leiguíbúðum borgarinnar um fimm hundruð á næstu fimm árum. Fjárfesting Félagsbústaða mun nema um 13,5 milljörðum króna. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að tillagan byggi á þarfagreiningu velferðarsviðs með vísan til núverandi þarfar, biðlista og spám um þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði til framtíðar. „Íbúðunum verður fjölgað með byggingu eða kaupum. Gert er ráð fyrir að fjöldi almennra félagslegra leiguíbúða í eigu félagsins verði um 1.815 í árslok 2014. Eignasafnið talið í fjölda íbúða mun stækka um 28% til ársloka 2019. Fjárfestingin nemur allt að 13,5 milljörðum á næstu fimm árum. Gert er ráð fyrir því að Reykjavíkurborg og ríki leggi fram um 30% eigið fé, í samræmi við hugmyndir um framtíðarskipan húsnæðismála. Þegar hefur verið óskað eftir formlegum viðræðum við félags- og húsnæðismálaráðherra um aðkomu og stuðning ríkisins við verkefnið. Gert er ráð fyrir að Félagsbústaðir kaupi eða byggi 550 íbúðir. Fjárfestingin verður fjármögnuð með 70% lántöku á almennum, verðtryggðum markaðskjörum til 50 ára. Á móti verði seldar um 50 íbúðir. Í umsögn og útreikningum fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar er í varúðarskyni miðað við 3,8% verðtryggða vexti. Að mati fjármálaskrifstofu er eðlilegt er að stefna á að tryggja betri kjör lána til fjárfestingarinnar. Á sama tímabili er gert ráð fyrir að seldar verði 50 minna veðsettar íbúðir úr eignasafni félagsins. Samkvæmt áætluninni verða íbúðir keyptar eða byggðar fyrir 13,5 milljarða á verðlagi hvers árs en á móti verði seldar íbúðir fyrir um 1,2 milljarða. Nettó fjárfesting í íbúðum verður þannig um 12,3 milljarðar eða tæplega 2,5 milljarðar að jafnaði á ári. Stofnfjárframlag Reykjavíkurborgar er áætlað rúmlega 1,23 milljarðar á tímabilinu samkvæmt áætlun Félagsbústaða sem er um 200 mkr meira á ársgrundvelli en framlög borgarinnar hafa verið að jafnaði frá stofnun félagsins,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Fleiri fréttir Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Sjá meira