15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára stúlku Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. nóvember 2014 17:38 Vísir/Getty
Hæstiréttur hefur staðfest 15 mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Vestfjarða yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára gamalli stúlku. Ólafur Börkur Þorvaldsson, hæstaréttardómari, skilaði sératkvæði og taldi að sýkna ætti manninn. Í dómi héraðsdóms kemur fram að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tvö brot gegn stúlkunni, annars vegar í janúar 2012 og hins vegar í mars 2012. Héraðsdómur sýknaði manninn af brotinu sem átti að hafa átt sér stað í janúar en sakfelldi hann fyrir brotið frá því í mars. Við skýrslutöku fyrir dómi kom fram að maðurinn og fjölskylda hans hafi á í mars 2012 búið heima hjá stúlkunni og fjölskyldu hennar, en maðurinn er pabbi frænku stúlkunnar. Þær frænkur hafi veri ð saman uppi í rúmi að læra þegar brotið átti sér stað. Stúlkan lýsti því fyrir dómi þegar að maðurinn kom inn í herbergið og settist á rúmið. Hann hafi svo farið undir sængina og inn undir buxnastreng stúlkunnar. Hún kvaðst hafa orðið mjög stressuð en maðurinn hafi ýtt lærum hennar upp og verið með hendurnar á nára hennar. Maðurinn hafi svo sett fingur sína inn í leggöng stúlkunnar og „fiktað í kynfærum hennar“ eins og það er orðað í dómnum. Stúlkan þorði ekki að segja neitt en á meðan brotið átti sér stað hafi hún og maðurinn verið að skoða hversu marga tengiliði þau væru með í símunum sínum. Þá var maðurinn einnig að tala við dóttur sína, frænku stúlkunnar, sem líka var í rúminu á meðan á brotinu stóð.Misræmi í framburði mannsins en stúlkan talin trúverðug Maðurinn neitaði sök í málinu en misræmi var í framburði hans hjá lögreglu annars vegar og fyrir dómi hins vegar. Hjá lögreglunni sagði maðurinn meðal annars að hann kannaðist við það að stúlkan hefði gist í rúmi með frænku sinni en mundi ekki sérstaklega eftir því kvöldið sem brotið átti sér stað. Þá kvaðst hann hjá lögreglu einnig ekki vera mikið fyrir að snerta fólk; eina dæmið um að hann snerti aðra sé þegar hann knúsi börnin sín. Fyrir dómi lýsti hann hins vegar mun ítarlegri samskiptum við stúlkuna og dóttur sína umrætt kvöld . Að mati dómsins hafi ekki komið fram trúverðugar skýringar á þessu misræmi í framburði mannsins. Á móti kemur að dómurinn telur framburð stúlkunnar stöðugan um atvik, bæði fyrir dómi sem og í Barnahúsi þar sem var tekin af henni skýrsla. Þá séu framburðir vitna í meginatriðum í samræmi við atvik eins og stúlkan lýsti þeim fyrir dómi og í Barnahúsi. Í samræmi við þetta taldi dómurinn nægjanlega sönnun komna fram fyrir því að maðurinn hafi brotið gegn stúlkunni. Var hann því dæmdur í 15 mánaða fangelsi en þar af eru 12 mánuðir skilorðsbundnir. Dóminn í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira