Fengu viðurkenningar fyrir æskulýðsstörf Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2014 14:29 Viðurkenningarnar voru veittar á ráðstefnunni ,„Stefum saman til framtíðar - Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2014“. Vísir/Æskulýðsráð ríkisins
Æskulýðsráð ríkisins veitti í dag þrjár viðurkenningar fyrir æskulýðsstarf árið 2014. Viðurkenningarnar voru veittar á ráðstefnunni ,,Stefum saman til framtíðar - Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2014" sem haldin var í vikunni. Gunnar Gunnarsson hlaut viðurkenningu í flokknum „Ungt fólk sem lagt hefur alúð við þátttöku sína í æskulýðsstarfi eða nýtt reynslu sína úr æskulýðsstarfi á öðrum sviðum þjóðlífsins.“ Í rökstuðningi kemur fram að Gunnar hafi komið víða við í margskonar félagsstarfi innan íþrótta- og æskulðýðshreyfingarinnar, tekið virkan þátt í æskulýðsstarfi á Austurlandi - í sinni heimabyggð, á landsvísu og í norðurlandasamstarfi. Auk þess hafi hann verið virkur í félagslífi á öllum skólastigum og gengt trúnaðarstörfum fyrir félagasamtök. Í flokknum „Aðilar sem sinnt hafa nýsköpun eða þróun í æskulýðsstarfi“ hlýtur Hitt Húsið viðurkenningu fyrir Músíktilraunir. „Músíktilraunir hafa í gegnum árin átt ómetanlegan þátt í að stuðla að nýsköpun og þróun í tónlistarlífi ungs fólks og verið einn aðalvettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 13 – 25 ára til að koma tónlist sinni á framfæri. Músíktilraunir hafa í gegnum árin gefið ungu tónlistarfólki tækifæri til þess að sýna við bestu aðstæður ríkulega tónlistarmenningu ungmenna og ekki síður gefið samfélaginu góða mynd af jákvæðu og uppbyggilegu menningar- og æskulýðsstarfi. Margir af okkar fremstu tónlistarmönnum eiga Músiktilraunum frama sinn og velgegni að þakka.“ Ólafur Proppé hlaut viðurkenningu í flokknum „Starfsmenn eða sjálfboðaliðar í æskulýðsstarfi sem skilað hafa merku ævistarfi eða á annan hátt hafa skarað fram úr“. Í rökstuðningnum segur að Ólafur hafi alla starfsævi unnið ötullega að æskulýðs-, uppeldis- og félagsmálum. „Hann á að baki farsælan feril við kennslu. Eftir að hafa lokið doktorsprófi í uppeldis- og menntunarfræði 1982 vann hann lengst af við Kennaraháskóla Íslands sem prófessor og síðustu níu árin sem rektor kennaraháskólans. Í störfum sínum við KHÍ vann Ólafur að stofnun Námsbrautar í tómstunda- og félagamálafræði árið 2001 og studdi vel við þróun námsins á fyrstu árum þess. Fjölmörg félög hafa notið þeirrar gæfu að hafa Ólaf Proppé innan sinna vébanda. Til að mynda hefur hann starfað sem skáti frá unga aldri og unnið fjölmörg trúnaðar- og forystustörf fyrir skátahreyfinguna á undanförnum áratugum. Þá hefur Ólavur einnig verið mjög virkur í störfum á vettvangi björgunarmála á Íslandi. Það er auðlegð fyrir hverja þjóð hafa í sínum röðum eldhuga og félagsmálaforkólfa eins og Ólaf Proppé og heiður fyrir Æskulýðsráð að veita honum viðurkenningu fyrir farsælt ævistarf að æskulýðsmálum.“ Viðurkenningum Æskulýðsráðs er ætlað að vekja athygli á því sem er til fyrirmyndar í æskulýðsstarfi á Íslandi og vera hvatning til þróunar, nýsköpunar og þátttöku.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira