Atvinnuleysið verður meira en fyrir hrun Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. nóvember 2014 07:00 Á meðal fundargesta var Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Fréttablaðið/GVA
Atvinnuleysi á Íslandi verður tæplega aftur jafn lítið og það var fyrir hrun og ætla má að jafnvægisatvinnuleysi verði í framtíðinni meira en áður hefur þekkst á íslenskum vinnumarkaði. Þetta segir í nýrri hagspá Hagfræðideildar Landsbanka Íslands. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, segir að fyrir hrun hafi ekki verið óalgengt, þegar þenslan var sem mest, að atvinnuleysið færi undir eitt prósent. „Það er miklu lægra en sem nemur stöðugu verðlagi. Í Svíþjóð er jafnvægisatvinnuleysið metið á yfir sex prósent. Það er þá það atvinnuleysisstig sem menn telja að samræmist verðstöðugleika,“ segir Daníel. Þetta séu þau mörk sem þurfi til að halda verðstöðugleika. Í hagspánni segir að staða á vinnumarkaði hafi batnað nær stöðugt undanfarið. Atvinnuleysi var mest í byrjun árs 2010 en hefur minnkað mikið. Starfandi fólki fór þó ekki að fjölga í umtalsverðum mæli fyrr en í fyrra þegar tæplega 6.000 manns bættust í hópinn. Í ár hefur staðan batnað enn frekar, atvinnuleysi minnkar reyndar hægar en áður, en batinn kemur fram í aukinni atvinnuþátttöku. Þá segir að langtímaatvinnuleysi hafi farið minnkandi. Á þriðja ársfjórðungi 2014 höfðu 0,5 prósent vinnuaflsins verið atvinnulaus í tólf mánuði eða lengur samanborið við 1% vinnuaflsins á þriðja fjórðungi 2013. Langtímaatvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt síðan á þriðja ársfjórðungi 2009.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira