„Áttum að klæðast flegnu og stuttum pilsum“ Jóhann Óli Eiðsson skrifar 23. nóvember 2014 21:48 Jóna María Hafsteinsdóttir og Þorsteinn Steingrímsson vísir/stefán/aðsend
Starfsfólk í auglýsingadeild sjónvarpsstöðvarinnar iSTV var beðið um, af Þorsteini Steingrímssyni, stjórnarformanni félagsins, að breyta klæðaburði sínum til þess að landa fleiri auglýsingum. Samkvæmt fyrrum starfsmanni auglýsingadeildar áttu þær að fara í háhælaða skó, stutt pils, hneppa vel að og setja brjóstin út. Mbl.is greindi frá þessu. „Þetta gerðist á fundi í lok ágúst með honum og samstarfskonu minni,“ segir Jóna María Hafsteinsdóttir, fyrrum starfsmaður iSTV. „Hann vildi meina að okkur myndi ganga mun betur að selja auglýsingar á þann hátt. Í byrjun september fengum við einfaldlega nóg og gengum út.“ „Það sem skiptir hins vegar meira máli en brjóstin mín er framkoma hans gagnvart sjónvarpsstöðinni og fólkinu sem vann þar. Þetta átti að vera grasrótarstöð fyrir ungt fólk til að koma sér á framfæri en honum tókst, upp á sitt einsdæmi, að keyra stöðina í þrot.“ „Ég notaði þetta sem líkingamál,“ segir Þorsteinn Steingrímsson aðspurður um málið. „Þegar þú ert að reyna að koma fjölmiðli í loftið þá gengur ekki að sitja bara á skrifstofu og aðhafast ekkert. Þú þarft að fara út meðal fólks og landa auglýsingum á þann veg og þá er betra að líta ágætlega út.“ Þorsteinn segir að umræddir starfsmenn hafi komið til iSTV frá Morgunblaðinu og Fréttablaðinu og ætlað að halda áfram með þá starfshætti sem þar tíðkast. Það sé hægt á marggjaldþrota miðlum en ekki á nýjum miðli á markaðnum. „Þegar lagt var af stað í þessa vegferð var ætlunin að þáttargerðarfólkið reddaði auglýsingum í þá þætti sem það sæi um. Þær breyttu því fyrirkomulagi og fengu alltof há laun án þess að selja svo mikið sem eina auglýsingu.“ Hann bætir við að þær hafi labbað út og skilið eftir sig sviðna jörð. Ef þær hefðu vott af sómatilfinningu myndu þær skila laununum sínum til þáttagerðarfólksins sem hefðu unnið baki brotnu og skilað efni til stöðvarinnar. Þær hafi hins vegar ekki skilað neinu.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira