Tvær milljónir til göngudeildar barna og unglinga með sykursýki Stefán Árni Pálsson skrifar 19. nóvember 2014 13:12 Kristín R.B. Fjólmundsdóttir afhendir styrk Thorvaldssensfélagsins. Árni V. Þórsson, fyrrverandi yfirlæknir, veitt styrknum viðtöku. vísir/aðsend
Thorvaldssensfélagið hefur fært styrktarsjóði göngudeildar barna og unglinga með sykursýki tvær milljónir króna að gjöf í tilefni af 20 ára afmæli deildarinnar sem er á Barnaspítala Hringsins. Thorvaldssenfélagið hefur undanfarin ár styrkt með myndarlegum hætti sumarbúðastarf fyrir börn og unglinga með sykursýki. Þá styrkti félagið gerð fræðslustuttmynda um sykursýki sem er hægt að nálgast á vefnum og hlaða niður í snjallsíma. Nýgreiningum barna og unglinga með sykursýki tegund 1 fer fjölgandi. Flókin meðferð krefst mikils af börnunum og fjölskyldum þeirra. Á göngudeild barna starfar þverfaglegt teymi sem veitir fjölskyldum barna með sykursýki margþætta aðstoð í formi fræðslu, ráðgjafar og sálfélagslegs stuðnings. Föstudaginn 14. nóvember 2014, á alþjóðlegum degi sykursýki, var haldið upp á 20 ára afmæli göngudeildar barna og unglinga með sykursýki. Efnt var til hátíðardagskrár í Hringsal. Árni V. Þórsson, fyrrverandi yfirlæknir, sagði frá tilurð og stofnun göngudeildarinnar, Elísabet Konráðsdóttir sérfræðingur í barnahjúkrun greindi frá núverandi starfsemi og Soffía G. Jónasdóttir, sérfræðingur í innkirtlalækningum, flutti erindi um nýjungar í meðferð. Þá sagði móðir barns með sykursýki frá sinni upplifun í erindi sem hún nefndi „svamlað í djúpu lauginni, sýn móður barns með sykursýki”. Að loknum erindum var boðið upp á tónlistaratriði og veitingar.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira