Styrmir og Þórhildur í nýjum þætti á RÚV Stefán Árni Pálsson skrifar 19. nóvember 2014 14:58 Bogi Ágústsson, Styrmir Gunnarsson og Þórhildur Þorleifsdóttir stjórna nýjum umræðuþætti á RÚV.
Hringborðið er nýr umræðuþáttur sem senn hefur göngu sína á RÚV þar sem þjóðmálaumræðan verður skoðuð í stærra samhengi með hliðsjón af samhengi sögunnar og reynslunnar. Umsjónarmenn þáttarins verða Bogi Ágústsson, fréttamaður og fyrrverandi fréttastjóri, Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi þingmaður og leikhússtjóri Borgarleikhússins. Hringborðið verður mánaðarlega á dagskrá RÚV, fyrsta mánudag hvers mánaðar á eftir tíu fréttum, og munu umsjónarmenn kalla til sín viðmælendur sem koma til að eiga það sameiginlegt að búa yfir yfirgripsmikilli reynslu og þekkingu og hafa þar af leiðandi vel ígrundaða og sterka innsýn í þau málefni sem hvað hæst brenna á þjóðinni hverju sinni eða þarfnast frekari skoðunar. „Hringborðið á að vera uppbyggilegur umræðuþáttur þar sem fólk með víðtæka reynslu og þekkingu á íslensku samfélagi ræðir málefni líðandi stundar. Umsjónarmennirnir eiga það sameiginlegt að hafa mikla yfirsýn og muna tímana tvenna. Við vonumst til að þátturinn muni setja málefni dagsins í dag í stærra samhengi og skauta hjá því argaþrasi sem einkennir umræðuna oft og tíðum. Okkur hefur stundum þótt skorta nokkuð á að raddir hinna reynslumeiri heyrist nægjanlega oft í íslenskum fjölmiðlum en við teljum að með þessu séum við að vissu leyti að bæta úr því. Ég á því von á litríkum og uppbyggilegum umræðuþætti þar sem tekist verður á af miklu krafti um þau málefni sem skipta þjóðina öllu máli, í dag og ekki síst til framtíðar litið,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira