Vilja að ríkið kaupi Grímsstaði á Fjöllum Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2014 17:20 Flutningsmenn segja margt mæla með því að ríkið festi kaup á Grímsstöðum á Fjöllum sem eru í þjóðlendujaðrinum. V'isir/Pjetur
Tveir þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að ríkisstjórninni verði falið að leita eftir samningi um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og tryggja þannig að jörðin verði þjóðareign. Fyrri umræða fer fram á Alþingi í dag. Flutningsmenn tillögunnar eru þau Ögmundur Jónasson og Svandís Svavarsdóttir, en sambærileg tillaga hefur tvívegis áður verið flutt á þingi. Í greinargerð með tillögunni segir að mikil umræða hafi spunnist í tengslum við áform erlendra auðmanna um að festa kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og öðru jarðnæði í landinu. „Þetta varð m.a. til þess að um 150 einstaklingar sendu frá sér áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar undir yfirskriftinni Grímsstaðir á Fjöllum verði þjóðareign þar sem skorað var á stjórnvöld að festa kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og marka skýra stefnu um ríkiseign á hliðstæðum jörðum.“ Flutningsmenn segja margt mæla með því að ríkið festi kaup á Grímsstöðum á Fjöllum sem eru í þjóðlendujaðrinum. Ríkið eigi þegar tvær jarðir suður af Grímsstöðum, Víðidal og Möðrudal, og um fjórðung Grímsstaða á Fjöllum. „Tekið er undir það sem fram kemur í framangreindri áskorun að æskilegt er að mótuð verði stefna varðandi eignarhald og umráð yfir óbyggðum og þá sérstaklega bújörðum sem teygja sig inn á hálendið.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira