Brýnn lúxusvandi í Reykhólasveitinni Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 8. ágúst 2014 12:00 Vandi fylgir vegsemd hverri og nú glímir Reykhólasveit við vanda sem fylgir uppganginum. Fréttablaðið/Jón Sigurður „
Við erum fyrirtæki í örum vexti og okkur bráðvantar starfsfólk á Reykhólum en við fundum ekki húsnæði þar,“ segir Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri og annar stofnenda fyrirtækisins Norðursalts sem er með starfsstöð á Reykhólum. Hann segir að nú þegar hafi fyrirtækið keypt gamalt hús á staðnum og gert það upp. Það dugir ekki til svo nú hefur fyrirtækið gert samning við gistiheimili fyrir vestan sem hýsir starfsmenn eina viku í senn. „Við könnumst við þennan vanda,“ segir Finnur Árnason, framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum. „Reyndar búum við svo vel að hér starfar fólk sem hefur gert það lengi. En svo þurfum við að fá sumarafleysingafólk og það hefur nú alltaf bjargast.“Frumkvöðlarnir Garðar Stefánsson og Sören Rosenkilde stofnuðu Norðursalt á Reykhólum í fyrra.Þuríður Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð, segir það staðreynd að erfitt sé að finna viðunandi húsnæði á svæðinu. Hún leitar nú logandi ljósi að starfsmanni og býr þó við það lán að geta boðið íbúð gegn vægri leigu. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, segir að verið sé að ræða þessi mál með atvinnuveitendum á svæðinu. Hún segir það vissulega heppilegast að einkaaðilar fari út í að byggja en kostnaður við það sé hár svo menn sjái ekki í hendi sér að slík fjárfesting standi undir sér. En ef ekki dugi önnur ráð segir hún líklegast að sveitarfélagið taki það að sér. Flestir viðmælendur Fréttablaðsins sögðu að húsnæðisskortur hefði varað nokkuð lengi. Aðspurð hvað valdi uppganginum segir hún menn í nýsköpun vera að koma auga á tækifærin sem svæðið hafi upp á að bjóða. Það kemur heim og saman við tíðindin af Norðursalti sem hóf útflutning á salti í sumar en við vinnsluna er notast við vatn úr borholu og eins affallsvatn frá Þörungaverksmiðjunni. Einnig er gert ráð fyrir því í skipulagi sveitarfélagsins að heilsulind Vatnavina Vestfjarða rísi í náinni framtíð. Þaðan koma og kraftar sem reka Sjávarböðin á Reykhólum þar sem auðlindir sveitarinnar eru nýttar til heilsubótar og yndisauka.
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Íranir enn vígreifir Erlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Sjá meira